Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2013, Page 62

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2013, Page 62
408 samkvæmt orðanna hljóðan falli ekki saman við rammann; hann sé fræðilega víðtækari og kunni jafnframt að ná yfir hæpnari eða fjar- stæðari skilning á orðalagi sem er þó ekki utan „mögulegs“ skiln- ings á því, t.d. skilnings sem víkur frá almennri málvenju. Gera má greinarmun frá fræðilegu sjónarhorni á afmörkun hins merkingar- fræðilega ramma – þ.e. mögulegrar merkingu textans – og þess hluta textaskýringar sem miðar að því að afmarka nærtækasta og rökréttasta skilninginn á orðalaginu. Ef þessi nálgun er lögð til grundvallar er ekki sjálfgefið að túlka beri áðurnefnd viðhorf Ár- manns með þeim hætti að þegar hann vísar til þess að farið sé „út fyrir vébönd sem orð ákvæðis marka“ eigi hann við að farið sé út fyrir hinn merkingarfræðilega ramma. Hafa verður enda í huga að hann styðst hvorki við það né sambærilegt hugtak í umfjöllun sinni. Þvert á móti rekur hann að rýmkandi lögskýring varðar ákvörðun á efni lagaákvæðis og sé lögskýringarkostur sem nærlægt sé að laga- ákvæði taki til. Hægt er að skilja hann á þann veg, a.m.k. með einni túlkun á skrifum hans, að rýmkandi lögskýring feli það í sér að lagaákvæði sé túlkað með rýmri hætti en eðlilegur eða nærtækur skilningur – skilningur samkvæmt orðanna hljóðan – gefur (merk- ingarfræðilega) til kynna. Með öðrum orðum er valinn sá túlkunar- kostur sem er rýmri en textaskýring bendir til en þó ekki fyrir utan hinn merkingarfræðilega ramma. Þegar valið sé á milli tveggja kosta við greiningu orða eða hugtaka sem báðir eru í samræmi við texta- skýringu er aftur á móti um að ræða ákvarðandi skýringu; túlkun sem er enn í samræmi við eðlilegan eða nærlægan skilning á orð- unum þótt vikið sé e.t.v. frá almennri málvenju. Um sé að ræða hluta af textaskýringu sem lögskýringaraðferð/-sjónarmið en ekki lög- skýringarleið. Þessi munur á rúmri ákvarðandi skýringu og rýmk- andi lögskýringu verður þó aldrei skýr miðað við þessar forsendur. Því verður ekki haldið fram að þetta sé nærtækasti túlkunarkost- urinn á skrifum Ármanns. Aftur á móti er hann til þess fallinn að samþætta viðhorf hans og Róberts, sem birtast í grundvallarritum þeirra, Almenn lögfræði og Túlkun lagaákvæða. 2.2 Nánar um inntak lögskýringarleiðanna Þá má varpa þeirri spurningu fram, sem fyrr er nefnd, hvort ólíkar skilgreiningar þeirra séu, þegar nánar er að gáð, samrýmanlegar varðandi aðra efnisþætti. Almennt hefur í fræðunum verið greint á milli túlkunar annars vegar og heimfærslu hins vegar. Hið fyrra felur í sér afmörkun á merkingu lagaákvæðis en hið síðara þá aðgerð að leggja mat á hvort tiltekið tilvik falli innan þeirrar efnisreglu sem túlkunin hefur leitt af sér.22 Reifar Róbert þá skoðun sína að erfitt sé 22 Róbert R. Spanó: Túlkun lagaákvæða, bls. 36.

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.