Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2013, Side 66

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2013, Side 66
412 arkostum. Önnur ástæða gæti verið sú að lögskýringarreglurnar (lagarökin) eru annars konar viðmið en lögskýringarsjónarmið. Þær eru viðmið um hvernig ber að velja lögskýringarkost á meðan lög- skýringarsjónarmiðin og –aðferðirnar lúta að því hvaða upplýsing- ar, gögn, sjónarmið og aðferðir er heimilt að styðjast við og þá hvernig.30 Rétt er að ítreka að hvað sem þessu líður er áfram hægt að nota hugtökin á báða vegu, þ.e. til að lýsa þeim túlkunarkosti sem er valinn, þegar allt hefur verið tekið til greina, eða tala um þau í því samhengi að fari beri tiltekna leið, t.d. í samræmi við ákveðna lögskýringarreglu. 3. TENGSL LÖGSKýRINGARLEIÐAR VIÐ LAGAREGLUNA Margur lesandinn kann að hafa heltst úr lestinni þegar hér er komið við sögu. Fyrir þá verður endurtekið að hér hefur verið farið yfir kosti og galla ólíkra skýrgreininga á lögskýringarleiðunum og bent á að þótt hinn merkingarfræðilegi rammi lagaákvæðis dragi fram mikilvægan punkt, sem hafa ber í huga við túlkun – að textinn sé upphaf, útgangspunktur og stundum lok túlkunar lagaákvæðis – kunna ytri mörk hans að vera óljós í framkvæmd. Þá hefur verið dregið fram í dagsljósið að ólíkar lýsingar á lögskýringarleiðunum, sem annars vegar vali á samhengi lagareglunnar við orðalag laga- ákvæðis og hins vegar hvort vafi sé fyrir hendi um hvort tiltekið tilvik falli undir lagareglu, kunni að vera samþættanlegar eða a.m.k. sé hægt að skilja sem ólíkar nálganir. Þá var rýnt í hvort lögskýringar- leiðirnar væru aðeins lýsing á niðurstöðu túlkunar lagaákvæðis eða aðferðir við val á túlkunarkosti. Hinn hugaði og þrjóski lesandi, sem hefur þrælað sér í gegnum hugrenningarnar, kann að lokum að spyrja hver séu tengsl lögskýr- ingarleiða og réttarheimildarinnar setts réttar, sem er andlag túlk- unarinnar. Því er til að svara að niðurstaða túlkunar lagaákvæðis er lagaregla.31 Eins undarlega og það kann að hljóma eru allar laga- reglur óskráðar (a.mk. í fræðilegum skilningi). Aðeins réttarheim- ildirnar eru skráðar eða óskráðar. Lagaákvæði fellur í hóp með þeim fyrri. Frá þessu sjónarhorni eru lögskýringarleiðir, miðað við nálg- un Ármanns, lýsing á því að lagareglan sé í samræmi við orðalag lagaákvæðisins, réttarheimildarinnar, eða rýmri eða þrengri en það. Séu túlkunargleraugu Róberts sett upp fela þær í sér, sem fyrr grein- ir, svar við spurningunni hvort tiltekið tilvik falli innan eða utan þeirrar lagareglu sem lagaákvæði hefur að geyma í ljósi þess hvort vafi sé til staðar að loknu mati á heildarsamhengi lagaákvæðis. Falli 30 Erik Boe: Grunnleggende juridisk metode. En introduksjon til rett og rettstenkning. Osló 2005, bls. 84-87. 31 Sjá til hliðsjónar Torstein Eckhoff: Rettskildelære. Osló 1987, bls. 24.

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.