Veiðimaðurinn - 01.12.1959, Blaðsíða 14

Veiðimaðurinn - 01.12.1959, Blaðsíða 14
Hvar á laxinn sér paradís? LAXINN er dularfullur fiskur. Hann skríður úr hrogninu í ósöltu straumvatni, enda geta hrognin ekki klakizt út í sölt- um sjó. Á þriðja til sjötta vori grípur ungviðið skyndilega ferðaþrá. Mjóslegin og lítil vexti láta seiðin berast til sjávar, en eftir nokkur misseri koma þau aftur og eru þá orðin að feitum og sællegum löxum. Það er einn af leyndardómum náttúrunnar, hvert laxinn fer og hvar hann öðlast þennan mikla og skjóta þroska. Við þá gátu hafa vísindamenn glímt í mörg ár. Hér er varpað fram einni getgátunni, sem enskur náttúrufræðing- ur er höfundur að. I. Saga laxins hefst á því, að ljósrautt hrogn liggur grafið í fíngerðri möl í ein- hverri ánni. Úr þessu hrogni skríður of- urlítill fiskur, sem liggur í marga daga kyrr í afdrepi sinu og nærist á forða þeim, sem hann á í kviðpoka sínum. Hann getur átt framundan átta eða níu æviár, en þessir dagar eru sá tími ævi hans, sem hann er óhultastur. Þegar kviðpokinn er tæmdur, borar seiðið sér upp úr mölinni, og þá hefst sá vandi, sem lífið færir því. Það er ekki nerna brot úr þumlungi á lengd, en gráð- ugir og hungraðir óvinir eru víða á sveimi, bæði fiskar og fuglar. Innan fárra daga hafa stór skörð verið höggvin í seiðahópinn, sem klaktist út. Sjálft sækist seiðið eftir lífverum, sem eru smærri en það. Það stækkar þó afar liægt — seinna en silungsseiði. Eftir tvö æviár í námunda við þann stað, er það fyrst vaknaði til lífsins, er það ekki nema fáir þumlungar á lengd. En einn góðan veðurdag kemur yfir það og önnur seiði á þess aldri undarleg óró, og hópurinn tekur að láta berast með straumi í átt til sjávar. Það er þó eins og þeim sé hálfnauðugt að fara. Þau snúa höfði í strauminn og láta hrekjast fyrir honum, líkt og þau berjist þó hálft í hvoru gegn þeirri þrá, sem þeim er í blóð borin. Hættunum fjölgar. Seiðin hrekjast undan straumi, sem svarrar við kletta og byltist í þrengslum, steypast fram af foss- brúnum og byltast í flugstrengjum. Og þetta getur orðið býsna langt ferðalag. Frá hrygningarstöðum laxins í Júkon- fljóti fara seiðin á fjórða þúsund kíló- metra, áður en þau komast i sjó. II. Loks er fyrsta áfanga ferðarinnar náð. Strauminn þrýtur, saltur sjór seytlast í gegnum litlu tálknin. Og þá bíða seiðin ekki boðanna. Þau taka viðbragð og stefna beint til hafs. Og þar með hverfa þau sjónum okkar. Enginn veit meira um ferðir þeirra. En þau seiðanna, sem lifa, koma þó aftur. Þau geta komið eftir eitt ár, og það 4 V.EIÐIMAÐU1UNN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.