Veiðimaðurinn - 01.12.1959, Blaðsíða 48
þar a£ 11 á ílugu, eða rétt um 85%.
A£ þeim sem voru í ánni frá 10/8—
13/8 hafði sá liæsti 14 laxa, þar a£ 8
á flugu, eða rúm 57%. Annar veiddi
8 laxa, alla á flugu.
Sá liæsti af þeim, sent voru í ánni 13/8
—16/8, fékk 11 laxa, þar af 8 á flugu,
eða tæp 73%. Næsti maður hafði 6 laxa,
þar af 4 á flugu, eða um 67%. Einn
fékk 5 laxa, alla á flugu.
Þetta kemur vel heim við skoðun
þeirra, sem halda því fram, að Norðurá sé
ágæt fluguá og að menn eigi að nota
þar flugu meira en almennt er gert. Hún
er meira að segja svo góð fluguá, að vel
kæmi til mála, að banna þar maðkveiði
mestan hluta veiðitímans.
Menn segja oft: „Ég reyndi fluguna,
en liann vildi hana ekki“. En hvernig
reyndu þeir hana? Þeir köstuðu einni
eða tveimur flugum í flýti yfir staðinn,
svona fyrir siðasakir, og beittu svo maðk-
inum.
Sumir, sem gera þessar málamynda-
tilraunir með fluguna, eru í raun og
veru fyrirfram vonlausir um að fá nokk-
uð á hana, og skortir því þá þolinmæði,
sein oft þarf til þess að ganga úr skugga
um að liægt sé að fá laxinn til þess að
taka flugu. En eftir að þessir sömu menn
hafa sett á rnaðkinn, geta þeir sumir
staðið tímunum saman í sömu sporum og
beðið eftir áð fá nart í liann. Þeir dingla
honum við nefið á laxinum í þeirri von,
að einhverntíma opni liann ginið og
slafri í sig beituna. „Hann geispar bráð-
um, e£ ekki vill betur til, og þá lendir
dræsan þín máske uppi í honum“, sagði
gamansamur náungi eitt sinn við félaga
sinn, sem honum þótti þaulsætinn með’
maðkinn. En áður en eitthvað slíkt ger-
izt er sá, sem ekki gefst upp við flug-
una, ef til vill búinn áð fá einn eða
tvo laxa, með ólíkt skemmtilegri og
sportlegri veiðiaðferð heldur en maðka-
dorg getur nokkurn tíma verið.
Að lokum þetta, góðir veiðimenn:
Þið vitið í raun og veru ekki liváð
stangveiði er, fyrr en þið farið að nota
fluguna sem aðal agn og hafið náð
nokkurri leikni í þeirri veiðiaðferð.
V. M.
Lax veiðist á færi undir Jökli.
HINN 1. júlí sl. birti Morgunblaðið
eftirfarandi frétt frá fréttaritara sínum
á Akranesi:
„Hringnótabáturinn Ásbjörn var
fyrri hluta í nótt vestan undir jökli, og
lóðuðu þeir þar á talsvert mikilli síld.
En síldin hélt sig við botn á 40—50
faðrna dýpi, svo ekki þýddi áð kasta.
Renndu þeir þá nælonfærum sínum
nokkra stund. Skeði þá það sem óþekkt
er áður hér á miðum, að einn skips-
manna fékk 8 punda lax á færið. Sá
lukkunnar pamfíll, sem laxinn dró, var
Hallvarður Einarsson, vélstjóri. Tveir
dágóðir þorskar liöfðu tekið niðri við
botn. Er Hallvarður er kominn með þá
miðja vegu upp, á 20—25 faðma dýpi,
ltleypur laxinn á og tekur öngul-
inn. Þessi hefur vafalaust verið úr laxa-
torfu á leið inn bugtina á fæðingarstöðv-
ar sínar í Haffjarðará, Langá, Hvítá eða
í einhverjum þverám hennar. Af eðlis-
livcit ratar laxinn svo að aldrei skeikar
:'i uppeldisstöðvar sínar.“
38
Veiðimaðurinn