Veiðimaðurinn - 01.12.1959, Blaðsíða 39
rifjast upp um þá. Skal nú skýrt frá því
markverðasta, sem höfundi er kunnugt
um stóra laxa, sem veiðzt hafa hér á landi.
Risalax veiddist í silunganet í Hvítá í
Borgarfirði, hjá Flóðatanga, á síðustn öld.
Menn eru ekki á eitt sáttir um þyngd
hans, hvenær hann var veiddnr eða af
hverjum. í Veiðimanninum nr. 18., 1951,
og síðar í bókinni „Að kvöldi dags“ 1952,
skýrir Björn J. Blöndal, rithöfundur, frá
því, að lax, sem talinn var 70 pd., hafi
veiðzt í Hvítá, frá Flóðatanga í Stafholts-
tungum. Björn bar sögu þessa undir Þor-
stein bónda Böðvarsson í Grafardal, sem
heyrt hafði hana af vörum sömu manna
og Björn. Þorsteinn taldi þyngd laxins
hafa verið 65 eða 70 pd., en hélt þó síð-
ari tölnna vera réttari. Stefán Ólafsson
telur í grein í Veiðimanninum nr. 19,
1952, að Björn fari rétt með þyngd laxins
og annað í frásögninni um Flóðatanga-
laxinn, en bætir við, að liann liafi veiðzt
í svokallaðri Sandskarðalögn, í kvísl úr
Hvítá, sem nú er þnrr, og ennfremur, að
Hálfdán bóndi á Flóðatanga hafi veitt
laxinn um 1880. Kiartan Bergmann, son-
nr annars sögumanns ofannefndra manna
telur laxinn hafa verið 64 pd. og er Jósep
Björnsson á Svarfhóli sammála Kjartani
nm þyngdina. Kjartan segir einnig frá því
eftir föður sínum, Guðjóni Kjartanssvni.
bónda á Flóðalanga, að stóri laxinn hafi
veiðzt á búskaparárum Ásmundar Þórð-
arsonar á Flóðatanga, en Asmundur bjó
þar á árunum 1840—1862. Kjartan telur,
að Ásmundur hafi veitt laxinn eða Björn
sonnr hans, er síðar bjó á Svarfhóli í Staf-
holtstungnm. Þá hefur Kristján bóndi
Fjeldsted í Ferjukoti það eftir Sigurði
Fjeldsted, föður sínum, að Flóðatangalax-
Þorgils Ingirarsscm, fx'w. form. I. f. S. og Þór GuÖ-
jónsson veiÖimáUisljóri, meÖ Grimseyjar-laxinn.
inn hafi vegið 120 rnerkur eða 60 pd.
Hvort heldur að þyngd laxins hefur verið
60, 64 eða 70 pd., þá er Flóðatangalaxinn
stærsti lax, sem sögur fara af, að veiðzt
hafi hér á landi.
Árið 1895 veiddist 45 pd. lax í ádrátt
í Laxá í Þingeyjarsýslu frá Nesi. Þorgrím-
ur Pétursson bjó þá í Nesi, en Sigurður
Guðmundsson og Jakob Þorgrímsson
veiddu laxinn í Vitaðsgjafa. Steingrímur
bóndi Baldvinsson í Nlesi og Karl Sigurðs-
son, bóndi á Knútsstöðum í Aðaldal, hafa
sagt, mér frá þessum laxi.
Sigurður Sigurðsson, bóndi að Núpum
í Aðaldal, segir í bréfi 1957 til Sæmund-
ar Stefánssonar, stórkaupmanns, frá stór-
Veidimaðurinn
29