Veiðimaðurinn - 01.12.1959, Page 39

Veiðimaðurinn - 01.12.1959, Page 39
rifjast upp um þá. Skal nú skýrt frá því markverðasta, sem höfundi er kunnugt um stóra laxa, sem veiðzt hafa hér á landi. Risalax veiddist í silunganet í Hvítá í Borgarfirði, hjá Flóðatanga, á síðustn öld. Menn eru ekki á eitt sáttir um þyngd hans, hvenær hann var veiddnr eða af hverjum. í Veiðimanninum nr. 18., 1951, og síðar í bókinni „Að kvöldi dags“ 1952, skýrir Björn J. Blöndal, rithöfundur, frá því, að lax, sem talinn var 70 pd., hafi veiðzt í Hvítá, frá Flóðatanga í Stafholts- tungum. Björn bar sögu þessa undir Þor- stein bónda Böðvarsson í Grafardal, sem heyrt hafði hana af vörum sömu manna og Björn. Þorsteinn taldi þyngd laxins hafa verið 65 eða 70 pd., en hélt þó síð- ari tölnna vera réttari. Stefán Ólafsson telur í grein í Veiðimanninum nr. 19, 1952, að Björn fari rétt með þyngd laxins og annað í frásögninni um Flóðatanga- laxinn, en bætir við, að liann liafi veiðzt í svokallaðri Sandskarðalögn, í kvísl úr Hvítá, sem nú er þnrr, og ennfremur, að Hálfdán bóndi á Flóðatanga hafi veitt laxinn um 1880. Kiartan Bergmann, son- nr annars sögumanns ofannefndra manna telur laxinn hafa verið 64 pd. og er Jósep Björnsson á Svarfhóli sammála Kjartani nm þyngdina. Kjartan segir einnig frá því eftir föður sínum, Guðjóni Kjartanssvni. bónda á Flóðalanga, að stóri laxinn hafi veiðzt á búskaparárum Ásmundar Þórð- arsonar á Flóðatanga, en Asmundur bjó þar á árunum 1840—1862. Kjartan telur, að Ásmundur hafi veitt laxinn eða Björn sonnr hans, er síðar bjó á Svarfhóli í Staf- holtstungnm. Þá hefur Kristján bóndi Fjeldsted í Ferjukoti það eftir Sigurði Fjeldsted, föður sínum, að Flóðatangalax- Þorgils Ingirarsscm, fx'w. form. I. f. S. og Þór GuÖ- jónsson veiÖimáUisljóri, meÖ Grimseyjar-laxinn. inn hafi vegið 120 rnerkur eða 60 pd. Hvort heldur að þyngd laxins hefur verið 60, 64 eða 70 pd., þá er Flóðatangalaxinn stærsti lax, sem sögur fara af, að veiðzt hafi hér á landi. Árið 1895 veiddist 45 pd. lax í ádrátt í Laxá í Þingeyjarsýslu frá Nesi. Þorgrím- ur Pétursson bjó þá í Nesi, en Sigurður Guðmundsson og Jakob Þorgrímsson veiddu laxinn í Vitaðsgjafa. Steingrímur bóndi Baldvinsson í Nlesi og Karl Sigurðs- son, bóndi á Knútsstöðum í Aðaldal, hafa sagt, mér frá þessum laxi. Sigurður Sigurðsson, bóndi að Núpum í Aðaldal, segir í bréfi 1957 til Sæmund- ar Stefánssonar, stórkaupmanns, frá stór- Veidimaðurinn 29

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.