Veiðimaðurinn - 01.12.1959, Side 28
$tórtíðindft ftð vrentft?
í HAUST var sagt frá því í Lesbók
Morgunblaðsins, að í sambandi við
kjarnorkutilrauir'r Bandaríkjamanna A
Bikini og Enewtok hefði fundizt aðferð
til þess að stækka fiskstofna í vötnum.
Menn tóku eftir því, að þnr sem ryk
frá sprengingum féll í vötn, fór fiskur-
inn áð vaxa örar en áður. Líffræðingar
hafa síðan fylgzt með þessu og komizt
að þeirri niðurstöðu, að með rykinu hafi
borizt mikið magn af málmsöltum í
vötnin og þau valdi þessum (ira vexti
fisksins.
Til þess að ganga úr skugga um þetta,
töldu líffræðingarnir nauðsynlegt að taka
eitthvert vatn fyrir tilraunir í þessu skyni.
Fyrir valinu varð vatnið Loma í Was-
hingtonfylki. Þar var fyrir dálítið af
silungi og veiðin samsvaraði þremur
pundum af hverri ekru. Þegar málmsölt
licifðu verið sett í vatnið, árið 1957, brá
s\o við, að 20 pund af silungi veiddusti
á itverri ekrustærð vatnsins, og árið 1958
var veiðin komin upp í 30 pund. Sil-
ungurinn var þá enn ekki nema hálf-
vaxinn, en nú tók hann að vaxa ört„ og
sl. sumar ve:ddust 179 pund af ltverri
ekrustærð vatnsins. Veiðin hefur þannig
rúmlega fimmtugfaldast á þessum árum.
Líffræðingarnir telja, að á þennan
hátt megi stórauka veiði í vötnum. Með
því að bera í þau málmsölt, skapist ný
og betri lífsskilyrði fyrir fiskinn, og sé
þetta að sínu leyti hliðstætt því, er menn
skapa jarðargróðri bætt vaxtarskilyrði
með áburði og fá margfalda uppskeru.
Ritstjóri Veiðimannsins spurði Þór
Guðjónsson veiðimálastjóra, hvað hæft
mundi vera í þessari frásögn, og kvað
hann rétt frá skýrt. Tilraunir þessar
hefðu nú staðið í 3 ár og ætlunin væri
að lialda þeim áfram 7 ár enn. Hefði nú
þegar margt mjög merkilegt komið í
ljós og ýmislegt væri á döfinni, sem el
til vill gæti valdið straumhvörfum í þess-
um málum innan fárra ára. Mætti gera
ráð fyrir að sumar aðferðir, sem nú væri
verið að prófa, yrðu almennt notaðar inn-
an skamms. Sagði veiðimálastjóri, að
prófessor L. Donaldson, frá Seattle, sem
hér var á ferð í sumar, hefði talið að
mjög merkilegra tíðinda mætti vænta um
þessar rannsóknir á næst.u árum.
Um það leyti, sem ritið var að fara í
prentun, barst því merkileg grein um
þessar rannsóknir, en hún verður að bíða
næsta heftis.
SÁRABÆTUR.
UM það leyti sem fréttist að stofnun
Sjóstangafélags væri í undirbúningi og
enski hámeramaðurinn var hér á ferð,
var ritinu send þessi vísa:
Nú hvíla verður lirygnurnar,
er lialla fer að vetri,
en harka þá við hámerar,
svo heilsan verði betri.
Hœngur.
18
Veiðimaourinn