Veiðimaðurinn - 01.12.1959, Side 30

Veiðimaðurinn - 01.12.1959, Side 30
Enginn staður, sem ég veit um, reyn- ir jafn mikið á þol stangarinnar, styrk- leika línunnar og sálarjafnvægi veiði- mannsins. Þar verður að nota tækifærin og vita hvenær þau standa til boða. Það má segja að við kvíslina geti allt skeð, enda hafa þar margir svo ótrúlegir hlut- ir gerzt, að þýðingarlaust væri að segja þeim, sem ekki hefði upplifað þar nokkra æsandi atburði. Sjálfur myndi ég trúa næstum því hverju, sem sagt væri um bardaga við mi'kla og stórlynda laxa í kvísl’nni. Hún er í mínurn augum sérstæð, ólík og æðri öllum öðrum veiði- stöðum. Eg vona að ég gangi aldrei úr þeim álögum, sem ég hefi orðið fyrir af völdum kvíslarinnar. Að heyra nafnið eitt getur bæði valdið því, að kaldur sviti renni n:ður bakið og sæluhrollur líði um mig allan. Mér er svipað farið með það og þegar ég var ástfanginn í fyrsta skipti, þá innan fermingaraldurs. Þá var nrér nóg að sjá þá útvöldu, til þess að komast í óraunverulegt, æðra ástand, svo maður ekki minnist á minnstu snertingu af hárlokki. En þessi næmleiki fyrir álög- um hvarf með árunum, og tilheyrir nti liinni sárblíðu rómantík æskuáranna. Þessa töfra finn ég svo aftur á stórgrýtinu við kvíslina. Að vísu við skoplega ólíkar aðstæður, en livað sem því líður, eru það sömu töfrarnir. Og það bezta er að álögin vara, þau eru ekki háð miskunn- arleysi tímans, sem hleður á mann árun- um, og myrðir næmleika æskuáranna. Sem sagt, ég hefi fundið dýrmætan, glat- aðan fjársjóð við kvíslina, sem kemst langt með að opna syndurn hlaðið hjarta fyrir hinni lireinu fegurð. O, góða kvísl, mín ævarandi festarmey, svo hrein og óspjölliið á hverju vori. Á þig bítur ekki tímans tönn þótt allt breyt- ist. Ár hvert munt þú verða ferzk og full af glampandi sórlaxi, og þar mun hver sem reynir, bæði komast í náið sam- band við grózkumikið vor og finna vor- ið í sjálfum sér. ☆ Ég er nú kominn að staurnum við kvíslina, þar sem útsýn yfir vatnið er ágæt. Bíð-um við: Þarna glitrar á eitt- hvað. Nokkrir stórlaxar liggja tit í strengnum. Ég þræði maðkinn upp á öngulinn, með skjálfandi fingrum, og læðist niður að vatninu. I fyrsta kastinu glefsar lax í agnið. Ég dreg inn í snatri og beiti á ný. I næsta kasti er hann á. Nú mun hefj- ast sá aðgangur, sem enginn fær gleymt. Hvernig hann endar er óvízt ennþá, því honum er ólokið. Um ókomin ár mun leikurinn standa, tvísýnn og æsandi, þrunginn töfrum óvissunnar, á grjótun- um við kvíslina góðu. Kaups kaups! ÞESSl veiðisaga birtist i tímaritinu Glettum, marzlieftinu 1959: Haraldur: Einu sinni í sumar var ég að veiðum á Arnarvatnsheiði og veiddi þá silung, sem var þriggja feta langur. Sigurður: Hvað er það? Slíkt getur alla hent. En þegar ég var að veiðum í Soginti í sumar, þá veiddi ég nýja gaslukt og það merkilegasta við þetta er það, að það logaði enn á luktinni. Haraldur: Nei, vinur minn, þú getur aldrei talið mér trú um þessa fjarstæðu. Sigurður: Þá það, — þá það. — Ef þú skerð tvö fet af silungnum þíniun, þá skal ég slökkva á lukt- inni. 20 Veiðimaðurinn

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.