Veiðimaðurinn - 01.12.1972, Síða 6
inu, er þessi staðhœfing ekki eins fráleit
°9 i fljótu bragði var talið þegar hún
var sögð. Þeir bjartsýnu vona þó, að í
þessu efni og mörgum öðrum standi allt
til bóta, og óneitanlega bendir ýmislegt
til þess, að mannkynið sé að sjá að sér
í umgengninni við náttúruna. Það hefur
srnám saman verið að renna upp fyrir
fjölda manna víða um lönd, ekki sízt
líffræðingum og öðrum vísindamönnum
í skyldum greinum, að með sama áfram-
haldi yrði innan skamms tíma búið að
eyðileggja skilyrðin fyrir mannlífi á jörð-
inni. Hún yrði orðinn óbyggUegur hnött-
ur. Náttúruverndarmenn úr öllum stétt-
um láta og mjög til sín taka síðustu árin
og þeim á vonandi eftir að verða mikið
ágengt næstu áratugi, enda ekki seinna
vænna.
Eg hóf þetta spjall með því, að tala
um veðrið og það er bezt að enda á því
líka. Margir hafa í mín eyru hvartað
undan þvi, að sólarleysið mestan hluta
sumarsins og síðan skammdegið hafi ill
áhrif á sálarlíf sitt, þeir séu þungir í
geði, líkamlega þróttlitlir og líti tilver-
una fremur dökkurn augum. Það hefur
reyndar verið sagt, að margir þyldu
skammdegið illa, yrðu jafnvel eitthvað
einkennilegir á sálinni. Má vera að ég
sé einn af þeim, þótt mér sé það ekki
sjálfum Ijóst, og ef til vill kann einhverj-
um að detta í liug að þessi pistill minn
gæti bent til þess. Hann er eflaust ekki
við allra hœfi. Kannski hálfgerðir
skammdegisórar. En hvað sem því líður,
þá tekur skammdegið enda, sól fer að
hækka á lofti og vonirnar um nýtt vor
og betra sumar fá vængi. Það er hæpið
að flytja lesendum jólakveðjur, því að
nokkur óvissa er um, hvort takast muni
að koma Veiðimanninum út fyrir jól að
þessu sinni. En árs og friðar má óska
öllum. Það er óliætt að segja:
Gleðilegt nýár.
Ritstj.
s---------------------------------------------------------\
Olympic
Olympic er í fremstu röð japanskra veíðarfæraframleiðenda. Við bjóðum í þeirra
umboði og í verziunum um land allt:
Stangir og hjól, m. a. lokuð spinnhjól í mjög miklu úrvali.
Einnig spæni, háfa, veiðivesti, kompása o. fl. o. fl. í fjölbreyttum gerðum.
OLYMPIC GÆÐI OLYMPIC VERÐ
SPORTVÖRUGERÐIN
Halldór Erlendsson. Mávahlíð 41. Sími 18382.
\_________________________________________________________^
4
VEIÐIMAÐURINN