Veiðimaðurinn - 01.12.1972, Síða 23

Veiðimaðurinn - 01.12.1972, Síða 23
keppniaðili á markaði, sem lýtur lögmál- um verzlunarreksturs, við frjálsa verðmvnd- un. Vandamál veiðifélags í dag er ekki hvort það á að leggja út á viðskiptabraut markaðarins, heldur hvemig á að starfa við þessar breyttu aðstæður. Sem félagi í S.V.F.R. hef ég tilhneigingu til að líta fyrst og fremst á hagsmuni þess. En ég bið menn að gæta að því, þegar þeir lesa framhald þessarar greinar, að ég er einnig velviljaður öðrum félögum, sem byggja starfsemi sína á sama hugsunarhætti og S.V.F.R. Við getum ekki og viljum ekki banna útlendingum að veiða hér. Fyrst og fremst vegna þess, að við stangaveiðimenn eigum ekki árnar. Það eru bændur og land- eigendur. Þeir vilja fá sem hæst verð fyrir sitt. Það er eðlilegt. Við viljum engin óeðli- leg afskipti löggjafans í þessu máli. Rétt- urinn til að eiga land og nýta það eftir grundvallarreglum, er of dýrmætur til að nokkuð sé hróflað við honum. Það sem við getum gert og eigum að gera, er, að aðlaga okkur breyttum aðstæð- um, og snúa vöm í sókn. Á markaði hinnar frjálsu verðmyndunar ræðst verð sumpart af framboði og eftirspum, en einnig af eðli samkeppninnar. Allt sem við höfum hingað til gert er, að apa eftir keppinautum okkar. Þeir tóku ár á leigu, skiptu þeim í tvö tímabil. Annað dýrt fyrir útlendinga, hitt ódýrara fyrir innlenda. Við leigðum Norð- urá og Grímsá, og gerðum eins. Hverjum kom það bezt? Þeim kom það bezt, sem við okkur keppa. Við höldum uppi verðlag- inu fvrir þá. Það er sitthvað, að taka veiði- vatn á leigu, setja þar upp sæmilega að- stöðu, deila út réttindum á kostnaðarverði, og að leigja á, byggja lúxushótel á bakka hennar, kaupa bíla, bryta, þjóna og veiði- aðstoðarmenn. Gera út sölumenn í aðrar heimsálfur, dreifa litprentuðum mynda- listum og annast allskonar fyrirgreiðslu, sem erlendum veiðigestum er nauðsynleg. Ef við viljum það síðarnefnda, nú, gott og vel, gerum það. En ekki kauplaust. Þá skulum við án eftirþanka, breyta S.V.F.R. í ferða- skrifstofu og reyna að hagnast svo sem aðr- ar ferðaskrifstofur. Við skulum þá gera þetta myndarlega og verða beztir. Ráða starfslið, kaupa bíla og tæki. Byggja lúxus- hótel. Hagnast og færa út kvíarnar. Viljum við þetta? Nei. S.V.F.R. var aldrei hugsað sem hlutafélag. Hlutverk þess er og verður, að útvega félagsmönnum veiði- leyfi á kostnaðarverði. Hvað eigum við þá að gera? Það er of- ur einfalt. Við skulum skjótast inn á mark- aðinn sem raunverulegir samkeppnisaðilar. Til þess höfum við tækifæri nú. Ekkert veiðifélag hefur fleiri meðlimi. Við höfum ágæt vatnasvæði, við höfum velvild og traust veiðiréttareigenda. Við höfum tím- ann með okkur. Og við getum auðveldlega hætt að okra á útlendingum. í stað þess að selja þeim veiðiréttindi á uppsprengdu áætlunarverði með innreiknuðum umboðs- launum innlendra og erlendra milliliða, sendum við út þau boð, að þeir séu vel- komnir til okkar sem félagar. Við munum segja þeim að það sé lands- venja á Islandi, að veiða án aðstoðarmanna, en ef þeir vilji annað, þá geti þeir snúið sér til ferðaskrifstofunnar A, sem láti þeim í té þá þjónustu, sem þeir óska eftir. Að út- hlutun veiðiréttinda fari fram í lok febrúar ár hvert, og ef þeir hafi greitt aukameð- limagjöld sín fyrir þann tíma, muni þeir fá umsóknarplögg send sem aðrir. Hvar í heimi sem þeir búa. S.V.F.R. heldur áfram VEIÐIMAÐURINN 21

x

Veiðimaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.