Veiðimaðurinn - 01.12.1972, Page 42

Veiðimaðurinn - 01.12.1972, Page 42
er bezti stangaveiðitíminn fvrir urriða frá því á vorin að ísa levsir, og fram á mitt sumar. Seiði sjóurriðans haga sér framan af ná- kvæmlega eins og seiði vatnaurriðans. Þau ganga til sjávar þegar þau eru 3—4 ára, og 12—18 cm að lengd. Þau ganga nið- ur á vorin, fljótlega eftir að ísa leysir. Þeg- ar þau koma í sjó, éta þau mikið, enda vfir- drifið nóg af mat. Að hausti eru seiðin orð- in kringum 250 grömm að þyngd. — Þá fara þau aftur upp í þá á sem þau komu úr, til þess að hafa þar vetursetu. Fiskurinn fer að ganga upp í ágúst og getur verið að því fram í desember, en aðalgangan er um miðjan september. Undantekningarlítið er allur sjóbirtingur í ánum á veturna og þar af leiðandi lítið sem ekkert af honum í sjónum. Sá fiskur sem veiðist í ánum snemma á vorin er því niðurgöngufiskur, en vegna þess, hve feitur hann er hafa menn oft ranglega haldið að sjóbirtingurinn væri að ganga úr sjó á vorin. En hitastig ánna er svo lágt á veturna og efnaskiptin þar af leiðandi svo hæg, að fiskurinn brennir mjög litlu. Eins halda fiskarnir sig margir sam- an í torfum og það gerir þeim enn léttara fvrir. Þar sem sjóbirtingur hefur verið rann- sakaður nánar, hafa árleg afföll í sjónum verið 30—50%, enda eru stórir sjóbirting- ar ekki algengir. Algeng stærð er 1 til 3 pund, og fiskar yfir 10 pund eru sjaldgæfir. Með aukinni laxarækt á síðustu árum hefur verið gengið nokkuð á hlut sjóbirtingsins, því laxaseiðin eru oft harðari í samkeppn- inni en urriðaseiðin og bola þeim því í burtu. Það eru laxaseiðin, en ekki fullorðni fiskurinn sem þrengja að sjóbirtingnum. Um laxinn hafa verið skrifaðar þykkri og fleiri bækur en nokkurn annan fisk og það er sá fiskur, sem mest er talað um, og fisk- ræktin beinist sterkast að í dag. Því ætla ég að vera stuttorður um hann og aðeins draga fram nokkur helztu atriðin á æviferli hans. Hann hrvgnir í straum- vatni, á svipaðan hátt og urriðinn nema hvað hann velur sér gjarnan sterkari straum og grófari botn. Eftir að seiðin hafa alizt upp í ánni 2—4 ár, ganga þau til sjávar og eru þau þá 12—15 cm að lengd. Vorið sem þau leggja af stað, verða á þeim innri og vtri breytingar, þau verða silfurgljáandi á hliðunum og dökkgræn á bakinu og hafa fengið sterka löngun til þess að leita til sjávar og matarlystin hefur aukizt óskap- lega. Þegar í sjóinn kemur vaxa þau mjög ört. Þannig að eftir 1 ár í sjónum eru þau orðin 50—60 cm löng og 3—5 pund að þyngd. Afföllin í sjónum eru mikil og einungis 1 af hverjum 10 seiðum lifir af árið. Flest seiðanna ganga eftir eins árs dvöl í sjón- um upp í þær ár, sem þau komu úr. Seiðin geta einnig verið tvö ár sí sjó. Jafnvel þrjú, en við það eru afföllin skiljanlega meiri. Laxinn fer að ganga frá því í endaðan maí og fram í byrjun september. Að hrygningu lokinni deyr mestur hluti laxins, aðeins um 9% fiskanna hrygna tvisvar og sárafáir þrisvar. Upphaflega koma allir okkar vatnafiskar úr sjó, eins og áður sagði, og sá fiskur sem fyrstur nemur hér land eftir ísöldina er bleikjan. Skýringin er sú, að bleikja er í eðli sínu norrænn fiskur og hefur því snemma getað leitað upp í kaldar jökul- 40 VEIÐIMAÐURINN

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.