Veiðimaðurinn - 01.12.1972, Qupperneq 39

Veiðimaðurinn - 01.12.1972, Qupperneq 39
seiði og hrogn, ef þannig vill til, annars lifa þau af svipaðri fæðu og seiði laxfisk- anna og eru þannig skæðir keppinautar þeirra um æti. Hornsílin eru einkum étin af urriðanum, og eins er krían og aðrar fuglategundir skæðir óvinir þeirra. Állinn er einn sá furðulegasti fiskur, sem til er, og enn þann dag í dag hefur gáta hans ekki verið ráðin til fulls. Hann er á öfugu róli við hina vatnafiskana, því í stað þess að ganga úr sjó til að hrygna í fersk- vatni þá hrygnir állinn í söltu vatni, og það er engin smávegis vegalengd á hrygningar- stöðvamar, því þær eru í Saragossahafinu um 4000 km frá ströndum Evrópu. Á dimm- um haustkvöldum, oft í vatnavöxtum, legg- ur állinn upp í þessa löngu ferð, og enginn veit hve lengi hann er á leiðinni eða hvaða leið hann fer, enn síður hvaða afl það er, sem dregur hann alla þessa leið suður í mitt Atlantshaf. Eitt er víst, að álalirfur finnast yngstar í Saragossahafinu, og hvergi ann- ars staðar í veröldinni. Af því draga menn þá álvktun, að þar fari hrygningin fram. Enginn hefur nokkm sinni fundið ála- hrygnu með þroskuð hrogn, og enginn veit hvað verður um álinn að lokinni hrj'gningu, en líklegt þykir að hann deyi strax á eftir. Álalirfurnar berast með Golfstrauminum að ströndum íslands og Evrópu og tekur ferðalagið 2V2—3 ár. Þá em seiðin orðin um cm að lengd, gegnsæ og nefnast gler- álar. Glerálarnir ganga upp í ár og læki yfir torfæmr og hvað sem fyrir er og taka sér bólfestu í fersku eða hálfsöltu vatni. Þar hefja þeir sitt vaxtarskeið og nefnast eftir það gulálar. Lifa þeir á ýmsum smá- dýrum, svo sem kuðungum, skordýralirf- um og krabbadýrum, einnig á smáfiski og hrognum annarra fiska. Állinn er nætur- dýr, og verður hans því lítið vart á daginn, þá liggur hann undir steinum, eða niður- grafinn í botnleðjuna. Sá tími, sem guláll- inn er að vaxa, er breytilegur og fer það bæði eftir kyni hans og því umhverfi sem hann elst upp í, en yfirleitt munu hængam- ir vera í fersku vatni um það bil 10 ár, og hrvgnurnar nokkru lengur. Til eru sögur um ála, sem hafa verið lokaðir inni í brunn- um í allt að því 55 ár, svo það er augljóst, að hann getur orðið gamall, komist hann ekki til sjávar. Áður en álinn leggur upp í sína hinztu ferð tekur hann að breytast í svonefndan bjartál. Hann dökknar á bakinu og verður silfraður á kviðinn, meltingarfærin draga sig saman og hann hættir því að taka til sín fæðu, augun stækka, og eina dimma haust- nóttina leggur hann af stað til sjávar eins og áður sagði. Það er sama hvort ferðin hefst á íslandi, annars staðar í Evrópu, í Miðjarðarhafi eða Svartahafi, allir em ál- arnir að fara til sama staðar, Saragossa- hafsins, til þess að hrygna. Það er ýmislegt fleira furðulegt og óleyst í fari álsins, eins og til dæmis, að í flestum vötnum er eingöngu hrygnur, í örfáum vötnum, en flestum sjávarlónum eru bara hængar. Hugsanleg skýring á þessu er að seiðin séu kvnlaus til að byrja með og kyn- ið ákvarðist síðan af einhverjum eiginleik- um í umhverfinu, sem enn eru óþekktir. Þegar talað er um silung á íslandi, er átt við tvær fisktegundir í einu, urriða og bleikju. Uppmnalega hefur ísland verið vestasti VEIÐIMAÐURINN 37
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.