Veiðimaðurinn - 01.12.1972, Blaðsíða 36

Veiðimaðurinn - 01.12.1972, Blaðsíða 36
á félagslegum grundvelli, þrátt fyrir þessa verðlagsþróun, hefur stjórn félagsins í senn orðið að taka afstöðu til þess, á hvem hátt væri unnt að trvggja félagsmönnum góða veiði til frambúðar á viðráðanlegu verði, og á hvern hátt endurskipuleggja mætti fjár- hags- og sölukerfi félagsins, svo að því marki yrði náð. Með öðrum orðum, á hvern hátt mætti koma í veg fyrir, að verðlags- þróunin leiddi til varanlegs samdráttar veiðisvæða félagsins, og þá um leið félags- starfseminnar allrar. Það er skoðun núver- andi stjórnar, að takast megi að spyrna gegn þeirri þróun, með aðlögun að þeim að- stæðum, sem nú ríkja í íslenzkum stanga- veiðimálum. Tveir nýir leigusamningar hafa ráðið mestu um þá stefnu, sem er í móttun, og kemur nú fram í starfsemi SVFR. Annar er nýr samningur um Norðurá, sem félagið hefur haft á leigu um langt árabil, og hinn er nýgerður samningur um Grímsá, sem er nú orðin hluti af veiðisvæðum félagsins. Allt síðan 1970 hefur verið ljóst, að mikil hækkun myndi verða á leiguverði Norður- ár. Það sumar var undirritaður við eigend- ur árinnar viðauki við gildandi samning, þar sem kveðið var á um, að við næstu endur- skoðun Norðurársamningsins skyldi tekið mið af því leiguverði, sem þá myndi gilda um Þverá, miðað við stangafjölda. Er end- urskoðunin kom til framkvæmda á sl. vetri, varð og ljóst, að veruleg breyting myndi samtímis koma til framkvæmda við veiði- svæði Norðurár. Veiðifélag Norðurár nær nú, með nýgerðum samningi, til árinnar allrar, allt niður að veiðimörkum við Hvítá. Á neðri hluta árinnar hefur um langt árabil verið stunduð netaveiði, síðari árin venju- lega með sjö til átta lögnum. Með nýja samningnum hverfa þær. Á móti upptöku netalagnanna koma hins vegar til fleiri stangir við Norðurá. Er þessi þróun í senn ánægjuleg og í anda þeirra, sem vilja viðgang og aukn- ingu stangaveiðinnar, og er rétt að geta þess, að netaupptakan kann einnig að hafa í för með sér auknar laxagöngur í Gljúfurá, sem á ós að Norðurá. í janúarmánuði sl. lauk endurskoðun Norðuársamningsins. Leigugjald það, sem nú er í gildi, er kr. 7 milljónir, og miðast, eins og fyrr segir, við gildandi stangaverð í Þverá, netaupptöku og fjölgun stanga. Hér er um mikla hækkun að ræða, þegar haft er í huga, að leiguverð Norðurár, árið 1971, var 2 milljónir. Leigugjaldið fyrir Norðurá miðast því nú, í fyrsta sinn, við þá þróun sem orðið hefur í verðlagningu margra íslenzkra laxveiðiáa, en eins og kunnugt er, hafa þær, hver af annarri, að meira eða minna leyti, færzt yfir á hendur erlendra veiðimanna úr hönd- um innlendra. Hafa erlendir veiðimenn, þá ekki sízt bandarískir, greitt allt að þre-fjór- falt verð á við það, sem innlendir hafa greitt hæst, en það verð er innlendum veiðimönn- um að sjálfsögðu ofviða. Stjórn SVFR hefur allt frá því að þessi þróun varð Ijós, stefnt að því, að hún yrði ekki til þess, að veiðisvæði SVFR kæmust á annarra hendur, eða þá, að afleiðingin vrði sú, að SVFR gæti ekki tekið á leigu ný veiðisvæði. Með þessu er þó ekld öll sagan sögð. Til þess að mæta harðri sam- keppni aðila, sem starfa ekki á sama grund- velli og SVFR, verður SVFR í fyrsta lagi að greiða a. m. k. sama verð fyrir þau veiðisvæði, sem semja þarf um, hverju sinni, og aðrir bjóða í og í öðru lagi verður að 34 VEIÐIMAÐURINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.