Veiðimaðurinn - 01.12.1972, Page 25

Veiðimaðurinn - 01.12.1972, Page 25
HRAFN EINARSSON: r \ Veiðivonir. — Fjórir menn koma gangandi upp frá ánni. Þeir stefna á kofa, sem stendur á hæð, rétt ofan við ána. Einn ber stóran lax við hlið sér, annar veifar tveim smálöxum í vinstri hendi. Hinir virðast ekkert hafa fengið. Á öxlum sér bera þeir veiðistangir. Veðurbar- in andlit og frjálslegar hreyfingar þeirra renna saman við umhverfið í kvöldskímu ljósaskiptanna. Veiðimenn á leið heim að loknum degi. Geislar hnígandi sólar upplita allt. Tind- ar fjallanna í austri, sem fyrr í dag voru hvítir, loga sem eldur. Holt og hæðir, allt er umvafið rauðu geislaflóði. Kyrrðin, sval- ur blærinn, öll þessi stórbrotna fegurð lita og landslags, fyllir sál mannanna vellíðan. Engin orð geta lýst slíku kvöldi. Kvöldi, sem alltaf kemur aftur og fer. Mennimir fjórir hverfa nú inn um dyrn- ar á veiðikofanum. Kofinn er dökkbrúnn að lit, gerður úr fjölum, sem era skaraðar hver yfir aðra. Á þakinu er bárujám, sem vegna vanhirðu er farið að ryðga. Þar kveikja þeir á olíulampanum. Birtuna legg- ur út um gluggann á annarri hliðinni og nú rýkur úr reykháfnum. Við skulum hraða okkur innfyrir og svala forvitninni smá stund. Inni eru veggirnir þiljaðir með felldum fjölum, sem einu sinni voru lakkaðar, en eru nú orðnar snjáðar. Öðrum megin í fremri hlutanum er eldhús- _______________________________; krókur. Þar stendur olíuvél á litlu borði. Fyrir ofan borðið eru skápar, ætlaðir fyrir leirtau og þess háttar. Hinum megin í her- berginu er arinn, sem nú skíðlogar í. Þarna hafa mennirnir fjórir komið sér þægilega fyrir. Einn situr í mjúkum hæg- indastól rétt framan við arininn. Annar læt- ur hendurnar hanga fram yfir bakið á tré- stól, sem hann hefur sezt öfugt á. Hann er að virða fyrir sér munnhörpu, sem hann rétt í þessu dró upp úr vasa sínum. Hinir tveir láta fara vel um sig á legubekk, undir glugganum. Á slíkum kvöldum eru oft sagðar sögur og margt skrýtið ber á góma. Líf veiði- mannsins er fullt af ævintýrum. Losnar þá ekki ósjaldan um málbeinið yfir góðum kaffibolla við hlýjan arineldinn. Við skulum leggja við eyrun og hlusta. Sá rauðhærði með munnhörpuna lítur brosandi upp, slær úr munnhörpunni á læri sér og segir: „Þið vitið víst ekki hver er munurinn á stangaveiðimanni og atvinnuveiðimanni, togarasjómönnum og svoleiðis. Jú, munur- inn er sko sá, að atvinnumaðurinn veiðir til þess að geta lifað, en stangaveiðimaðurinn lifir til þess að geta veitt.“ Hann hlær snöggvast ofsalega, en hættir jafnfljótt aft- ur, er hann verður þess var, að enginn hinna tekur undir. Annar mannanna, er situr á legubekkn- VEIÐIMAÐURINN 23

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.