Veiðimaðurinn - 01.12.1972, Page 18
Einn 18 p. úr Brúarhyl í Laxá. — Ljósm.
Viggó Jónsson.
annarri útgáfu sögunnar stendur svo: . .
hafði í hendi fiskistöng ok örriðanet á stöng-
unum.“ Gæti það bent til sérstakrar tegund-
ar veiðistangar, sem notuð hefði verið í
sambandi við netaveiði, en er ekki þekkt
nú á tímum.
Við látum hér staðar numið og má þó
tína margt fleira til ef vel er leitað. „Maður
líttu þér nær.“ Margar hættur steðja að
laxveiðinni, t. d. úthafsveiðamar, sem hljóta
að hafa alvarlegar afleiðingar fyrir laxa-
stofninn fyrr eða síðar, ef ekki tekzt með
einhverjum ráðum að komast að samkomu-
lagi um takmörkun eða þá helzt banni við
þeim. Skuggi hvílir einnig yfir stangaveiði
í okkar fögru Laxá í Aðaldal og öllu henn-
ar vatnasvæði, ef til þeirra framkvæmda
kemur í raforkumálum, sem heyrzt hefur
að séu á prjónunum. Við þeim vanda, sem
öllum öðrum, þarf að bregðast á sem skyn-
samlegastan og hagkvæmastan hátt. Allt líf-
ið er barátta og svo verður einnig um lax-
veiðimálin. Von okkar allra er fyrst og
fremst, að sú eindrægni og samstarfsvilji,
sem ríkt hefur í samskiptum veiðieigenda
og leigutaka hér við Laxá í Aðaldal, megi
haldast, og þá ekki sízt vegna tilkomu hins
nýja og glæsilega veiðihúss, sem telja má
til mikillar prýði og sómir sér vel í hinu
undurfagra umhverfi Laxamýrarlands.
Kápumyndin er að þessu sinni af Rieh-
ard Buck, formanni CASE, sem eru sam-
tök áhugamanna um vemdun Atlantshafs-
laxins. Þetta er eiginlega veiðisaga í mynd-
um. Vinir Richards Bucks kalla hann stund-
um „the grandfather of salmon fishermen.“
Hann er eins konar Walton vorra tíma. Þeir
þakka það að miklu leyti skeleggri baráttu
hans, að Bandaríkjaþing samþykkti lögin
1971, þar sem forsetanum er heimilað að
setja hömlur á innflutning frá þjóðum, sem
stunda ofveiði á laxi í úthafinu (sbr. grein
Þórs Guðjónssonar veiðimálastjóra hér að
framan).
Richard Buck kom hingað til lands sl.
sumar og veiddi sem gestur SVFR, m. a.
í Norðurá og Grímsá. Hann er afburða
snjall veiðimaður og náttúruverndarmaður
af lífi og sál. Hann flutti hér fyrirlestur um
úthafsveiðarnar og aðgerðir gegn þeim —
það sem þegar hefur áunnizt og verið er að
vinna að.
Á myndinni er Buck að veiða í Selá í
Vopnafirði og sézt hann þar þreyta 15 p.
lax og síðan með hann þegar hann hafði
landað honum.
16
VEIÐIMAÐURINN