Veiðimaðurinn - 01.12.1972, Side 24
að starfa í þeim anda, sem til var stofnað.
Það leigir veiðivötn, bætir þau, reisir mynd-
arlega en spartneska aðstöðu og selur þjón-
ustu á kostnaðarverði þeim, sem leita að
friði og frelsi. Þeim, sem vilja kaupa óhóf,
vísar S.V.F.R. á keppinauta sína.
Hver er sjálfum sér næstur. Enda er sam-
keppni spegilmynd eiginhagsmuna. Það
þarf enga framsýni til að sjá, hvað verður,
ef því er hlýtt, sem hér er tæpt á. Fyrir-
tæki, sem hafa arð að markmiði koma ekki
til með að sprengja upp verð á laxveiðiám,
ef vitað er fyrirfram að stærsti leigutakinn
selur á kostnaðarverði. Ár munu losna úr
leigu, en það verður aðeins einn aðili, sem
býður í þær sannvirði: S.V.F.R.
Efasemdamaðurinn segir nú sem svo: Ut-
lendingarnir setja verðlag ekki fyrir sig.
Þeir greiða hvað sem upp er sett, til að
fá frið með félögum sínum. Þessu er því
til að svara, að í fyrsta lagi er ætlunin alls
ekki sú, að einoka framboðið og það er
félaginu bara til góðs, ef það getur vísað
á aðila, sem annast lúxusfyrirgreiðslu. í
öðru lagi geta útlendingarnir fengið allar
stangir einhvers veiðisvæðis, ef þeir eru all-
ir félagsmenn, sem um sækja. í þriðja lagi
má geta þess, sem mörgum dylst, að þeir
sem mest féð eiga eru oft hagsýnastir. Efa-
semdarmaðurinn segir einnig eitthvað á
þessa leið: Erlenda eftirspurnin er svo
mögnuð, að það sér ekki högg á vatni, þó
nokkrir kaupi á kostnaðarverði. Næg eftir-
spurn verður samt fyrir hendi til að ýta
undir verðlag. Þessu er því til að svara, að
þeim mun örari verður uppgangur S.V.F.R.,
ef það hlýðir þessari ábendingu, sem eftir-
spurnin er ólmari, og þeim mun betur verða
hagsmunir félagsmanna þess tryggðir.
Veiðiréttareigendur geta alls ekki verið á
móti þessari stefnu hagsmunafélags. í fyrsta
lagi vegna þess að aðferðin er heiðarleg
og í öðru lagi, að hún veitir þeim sann-
virði fvrir hlunnindi jarðanna og tryggir Is-
lendingum áfram not þessara landsgæða.
Ég legg því til, að framtíðarstefna
S.V.F.R. verði þessi:
1. Félagið verði öllum opið. Inntökugjald
verði hátt. Árgjald verði hóflegt fyrir
innlenda meðlimi, en hærra fyrir er-
lenda, sem verði aukameðlimir án at-
kvæðisréttar.
2. Að samið verði við ferðaskrifstofur um
fyrirgreiðslu við erlenda veiðimenn, út-
vegun aðstoðarmanna og aksturs, og að
þessi störf verði utan verksviðs S.V.F.R.
3. Að verðskrá og umsóknargögn verði
send út í byrjun janúar hvert ár. Ut-
hlutun eigi sér stað fyrir lok febrúar
og veiðiréttindi verði tryggð með
geymslugjaldi fyrir lok marz. Þau rétt-
indi, sem þá eru óseld, bjóðist á almenn-
an markað með 10% álagi.
4. Að upprunalegur andi félagsins fái að
ríkja svo lengi sem veiðivon er.
VEIÐIMENN!
Hér er átt við bæði karla og konur, sem
iðka stangveiði og hafa gaman af að lesa
Veiðimanninn. Fáið vini ykkar, sem hafa
sama áhugamál, en kaupa ekki ritið, til að
gerast áskrifendur. Allir sem á annað borð
hafa gaman af stangveiði, þurfa að kaupa
Veiðimanninn. Ritstj.
22
VEIÐIMAÐURINN