Veiðimaðurinn - 01.12.1972, Page 26

Veiðimaðurinn - 01.12.1972, Page 26
um, vindur sér að manninum, sem situr í stólnum og segir: „Heyrðu Valdi, þú ættir nú annars að segja okkur eitthvað frá gömlu dögunum, þú átt svo margt í poka- hominu.“ Það snarkar í eldinum, lítill glóðarmoli þeytist fram á gólfið og fellur rétt við fæt- ur Valda. Hann beygir sig hægt niður, tek- ur upp spýtukubb og stjakar glóðarmolan- um aftur inn í eldinn, kiprar augun saman, starir hugsi inn í glæðurnar og segir: „I pokahorninu, jú, jú víst á maður svo sem margt í pokahominu, það fer vart hjá því, þegar maður hefur veitt í þrjátíu ár. Þegar ég læt hugann reika aftur til gömlu áranna, þá kemur mér til hugar að segja ykkur frá atviki sem skeði hérna á ámnum eftir að við Siggi Sveins fengum delluna. Það voru ekki margir með veiðidellu þá, og það get ég sagt ykkur, að það var almennt gert stólpagrín að okkur fyrir það tiltæki okkar. Það má nú segja, að það sé af sem áður var, því nú er varla nokkurs staðar hægt að renna færi án þess að eiga á hættu, að flækja færi einhvers annars. Já, og varla nokkurs staðar bein að hafa. Þá er það nú eitt: Eg held því fram að setja beri lög um það, að ekki megi drepa fisk, sem er undir 25 til 30 cm., nema með sérstökum undan- þágum. Það er annars bezt að ég haldi mig við efnið. Þetta var í þá gömlu góðu daga. Siggi hafði eignazt bíl. Einn af þessum með blæjunni, sem alltaf sauð á, þegar mað- ur fór upp brekkur. Þvílíkur skrjóður! Siggi var nú samt voðalega hreykinn af honum og réði sér varla fyrir monti, enda svo sem allt í lagi með hann. Það voru ekki aðrir bílar betri í bænum í þá daga, því megið þið trúa. Töframáttur stangaveiðinnar hafði þá þegar seitt okkur svo gjörsamlega til sín, að ekki var til að tala um að sleppa einum einasta frídegi. Hvernig veðrið var skipti okkur litlu máli. Við höfðum ákveðið að fara sunnudag einn, ja, eins og reyndar alla aðra sunnu- daga. Að þessu sinni átti að kanna nýjar slóðir. Við ætluðum suður í vatn, en þangað höfðum við aldrei áður farið. Ábvggilegar fréttir þóttumst við þó hafa um það, að þar væri mikið af bleikju í stórum torfum. Nú var hugmvndin sú, að moka henni upp, en helztu áhyggjurnar snerust um það, hvernig við ættum að fara að því að koma allri þessari veiði heim. En hvað við vorum óþroskaðir í þá daga! Það vantaði ekki bjart- sýnina, enda hlýtur sannur veiðimaður allt- af að vera bjartsýnismaður. — Bjartsýnis- maður, sem getur komið heim að kvöldi dags, dapur í bragði vfir því að hafa ekkert fengið, en vaknar svo aftur næsta dag fullur lífsgleði og viss um það, að nú ein- mitt í dag mundi hann fá hann. Og nú er hann ekki í neinum vafa um orsakirnar fyrir því, hvers vegna hann fékk ekkert í gær. Það sem meira er, honum verður oft að ósk sinni. Veiðivonir kallar maður þetta. Jæja, þarna var Siggi mættur í bílnum fyrir framan heima hjá mér, klukkan hálf sex um morguninn. Berjandi bílflautuna, sem rumdi í eins og hásri kú. Eg flýtti mér að fleygja dótinu mínu inn í bílinn og skella á eftir mér hurðinni. En sú rigning. Það var einna líkast því, að allar flóðgáttir himins hefðu opnast á einni og sömu stundu. Ég skalf eins og hrísla í vindi. „Það er annars skrýtið með þennan skjálfta, sem stundum grípur mann í svona veðri,“ segi ég og sný mér að Sigga. „Það er syndaflóðið maður, syndaflóðið," segir Siggi, um leið tekur 24 VEIÐIMAÐURINN

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.