Veiðimaðurinn - 01.12.1972, Síða 27

Veiðimaðurinn - 01.12.1972, Síða 27
hann upp gamla loftvog í útskornum tré- ramma. Hann heldur áfram. „Hefurðu séð hana þessa, maður?“ „Hvað ertu eiginlega að gera með þetta gamla drasl?“ verður mér að orði. „Pabbi á hana,“ segir Siggi. „Eg stal henni svona rétt í dag. Það er alveg nýj- asta nýtt. Ég las um það í ensku blaði, sem ég komst vfir núna í vikunni. Maður getur alveg farið eftir loftvoginni, þegar maður fer að veiða. Það á að vera alveg óhætt að treysta henni. Að minnsta kosti segja þeir það þarna í blaðinu. Þegar hún fellur svona mikið, sko sjáðu, eins og núna, ha, ja þá á hann víst annars ekki að taka.“ „Ég gef ekki fimmevring í þessar dellur þínar Siggi,“ segi ég, „og hvaða dellu skyld- irðu svo fá næst?“ Þarna öslaði bíllinn áfram í gegnum for- ina á veginum. Það skvettist úr pollunum undan hjólbörðunum upp undir bílgrindina og brettin svo dundi í. Þurrkumar höfðu ekki undan að þurrka regnið, sem skall hamslaust á rúðunum. Ég man að við vomm einmitt að tala um ýmsa lifnaðarhætti fisk- anna og Siggi hélt því fram, að hann hefði áreiðanlegar heimildir fyrir því, að bleikjan svæfi stundum, og þá rótaði hún upp botn- leðju, sem síðan félli aftur til botns og hyldi hana þá. Einnig taldi Siggi víst að alltaf væri einn foringi meðal þeirra. Ég man að ég hélt því fram að silungar, að minnsta kosti urriðinn, sæju betur í myrkri heldur en í björtu, enda væri það ekkert leyndarmál, að stóru, gömlu urriðarnir veiddust oftast í kolniðamyrkri. Við vorum einmitt að velta því fyrir okk- ur, hvað vrði af þeim silungum, sem dæju úr elli, en það hlyti þó alltaf einn og einn að ná þeim aldri, þegar Siggi kippir í hend- ina á mér og segir: „Sjáðu, sjáðu þama til hægri. Það er vatnið, alveg ábyggilega." Og nú sá ég líka hvar rétt grillti í það. Þoku- læða lá með fram vatninu nær sjónum, en teygði sig sums staðar út undir mitt vatn- ið. Nú erum við komnir fast upp að vatninu, og Siggi er að skvggnast um eftir stað til þess að leggja bílnum. Hann beygir inn á hraunhellu rétt við veginn og drepur á mótornum. Við stígum út úr bílnum og nú hefst keppni um það, hvor verði á undan að setja saman. Enn var ég ekki alveg laus við hrollinn. Ég man það svo vel, eins og það hefði skeð í gær. Þessi ónotalegi skjálfti virtist hafa náð algeru vakli yfir mér á þess- um drungalega degi. Það hvein í loftinu þegar skýjaflákar þutu fram með hlíðum fjallsins að baki okkur. Daufur ómur frá brimi barst til okkar. Aðeins sandrif ver vatnið fyrir miskunnarlausum ágangi út- hafsins. „Heyrðu Valdi, er ekki bezt að við tökum hann þarna úti í eyjunni, það er al- veg hægt að vaða þangað. En blessaður gleymdu ekki að taka með þér léreftspok- ann, fyrir alla muni.“ „Vertu ekki að grínast þetta Siggi,“ segi ég, því að ég er viss um að við fáum ekki bröndu. „Þú getur farið út í eyjuna, en ég ætla þarna hinum megin í víkina.“ Tíminn líður, og það er komið fram yfir hádegi, þegar ég rölti upp frá vatninu og kræki í bitakassann minn. Ég fæ mér sæti á klöpp og Siggi kemur til mín muldrandi einhver ókvæðisorð. Hann sezt líka og fer að rífa í sig brauð. Ég sný mér að honum og segi: „Ekki var frekar en ég, býst ég við.“ „Var,“ svarar Siggi. „Hvað er nú það? Ég held það hafi áreiðanlega aldrei lifað kvik- indi í þessu vatni.“ Við komum okkur saman um, að þegar VEIÐIMAÐURINN 25

x

Veiðimaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.