Veiðimaðurinn - 01.12.1972, Síða 37
tryggja, aS hátt leiguverð birtist ekki í jafn-
aðarverði, sem félögum SVFR yrði um
megn að greiða. Stjórn félagsins hefur í
þessu efni ekki eygt aðra leið en þá að leita
að nokkru á þann markað, sem hæst verð
gefur, og afla þannig þess fjár, sem gerði
félaginu kleift að standa undir leiguverð-
inu, og haga þá sölunni þannig, að rúmlega
tveir þriðju veiðitímans í Norðurá yrðu eftir
sem áður til úthlutunar innan félagsins, á
viðráðanlegu verði. Því hefur verið ákveðið,
að selja erlendis á þessu ári um 11 stangir
í Norðurá, frá 27. júní til 9. ágúst, en aðrar
stangir verða á markaðnum innan félagsins.
Það meginsjónarmið hefur verið haft við
Verðlagningu að ná sem hæstu verði er-
lendis.
Dagurinn við Norðurá kostar nú til er-
lendra veiðimanna, umræddan tíma, 250
dollara, eða sem svarar um 22.000,— krón-
um. í því verði eru falin umboðslaun til
erlendra ferðaskrifstofa, að svo miklu leyti,
sem þær annast söluna, en umboðslaunin
nema 20% af heildarverði. Af þessu verði
þarf að greiða þá þjónustu, sem óhjákvæmi-
leg er, s. s. fæði, leiðsögumenn, akstur til
árinnar frá Reykjavík og til baka, og við
ána, og aðra umönnun.
Á sl. hausti varð ljóst, að stofnun veiði-
félags eigenda Grímsár yrði til þess, að áin
yrði boðin út, ein eftirsóttasta veiðiá á land-
inu, og þá hugsanlega í heilu lagi. Fram til
þessa hefur áin verið leigð í hlutum. I
febrúarmánuði var Grímsá síðan boðin út,
og bárust mörg tilboð. SVFR bauð í Grímsá.
Samkeppnin var hörð, en tilboði SVFR var
að lokum tekið. Var það 6,2 milljónir króna,
í ár, og fylgir því bygging veiðihúss við ána,
sem verður eign veiðifélagsins við Grímsá á
samningstímabilinu, sem er sjö ár. Svipað
tilboð hafði borizt frá öðrum aðila, þó að-
eins lægra að krónutölu. Grímsá verður því
hluti veiðisvæða SVFR, umrætt tímabil, en
tvisvar á samningstímabilinu, a. m. k., verð-
ur samningsupphæðin þó tekin til endur-
skoðunar. Grímsá verður veidd með allt að
tíu stöngum, en veiðisvæðið nær frá veiði-
mörkum við ármót Hvítár að efsta hluta
veiðisvæðisins í Tunguá.
í Grímsá veiddust í fyrra rúmlega 2000
laxar, og er hlutfall þar á milli stangadaga
og veiddra laxa sízt óhagstæðara en við
Norðurá. Um Grimsá gildir það, sem sagt
hefur verið um Norðurá, að um þriðjungur
veiðitímans, þ. e. frá 6. júlí til 10. ágúst,
verður til sölu á erlendum markaði, á næstu
mánuðum, af ástæðum, sem þegar hafa
verið skýrðar. Verð erlendis á stöng á dag
er 195 dollarar, eða um krónur 17.500,—.
Verð Grímsár á erlendum markaði verður
því í ár lægra en verð Norðurár, og kemur
þar fyrst og fremst til, að við ána er allt
önnur dvalaraðstaða en við Norðurá.
Úr því verður hins vegar baett, á næsta
ári, er til kemur veiðihúsið nýja, og er þá
stefnt að því að hækka verðið erlendis, til
samræmis við það, sem nú er á verði veiði-
leyfa til útlendinga við Norðurá.
Augljóst er, að veiðimálin hérlendis eru
að beinast inn á nýjar brautir. Þetta hefur
greinilega komið fram á starfsemi Stanga-
veiðifélags Reykjavíkur. Umsvif félagsins
eru nú orðin mikil. Fyrir rúmum áratug var
heildarvelta félagsins aðeins um 2 milljónir
króna. í fyrra var hún um 16 milljónir, en
gert er ráð fvrir, að hún verði um 35 millj-
ónir í ár.
Áhugi á stangaveiði fer vaxandi, ekki sízt
meðal veiðiréttareigenda, sem virðast nú í
auknum mæli gera sér fulla grein fyrir því,
VEIÐIMAÐURI.NN
35