Veiðimaðurinn - 01.12.1972, Síða 46

Veiðimaðurinn - 01.12.1972, Síða 46
með að finna málið, en að lokum stundi hann þó upp: „Það var lán að ég var í yðar landi, en ekki hans sir Duncans. Hann hefði aldrei bjargað mér.“ „Stelstu líka í ána hjá honum?“ spurði lávarðurinn. „Já, miklu oftar en til yðar, lávarður minn. Bæði er nú styttra þangað heiman að frá mér og aðstaðan að mörgu leyti betri, en svo hefur konan mín harðbannað mér að taka lax frá yður. Hún segist hafa hitt yður stundum þegar hún átti leið héma með ánni á yngri árum sínum og hefur alltaf mætur á yður síðan.“ „Hm! sagði lávarðurinn. „Það er fall- egt af henni. Hún var góð stúlka. Eg ætla að reyna að setja í lax handa henni, ef þér er ekki orðið of kalt til að bíða eftir því. Þú getur sagt að þú hafir veitt hann hjá sir Duncan!“ Lávarðurinn var fljótur að setja í laxinn og lét þjófinn hjálpa sér að landa honum. Að því búnu mælti hann: „Taktu nú fiskinn og farðu með hann heim. Það er víst kominn tími til fyrir þig að fara úr bleytunni.“ „Það er ekki ofsögum sagt af göfug- mennsku yðar, herra. í stað þess að kæra mig fyrir veiðiþjófnaðinn, gefið þér mér lax í matinn.“ „Ég veiddi hann handa konunni þinni,“ svaraði lávarðurinn. „Já, en kemur það nú ekki í sama stað niður? Það sem þér gerið vel til hennar, er velgjörð við mig Iíka.“ „Ekki þyrfti nú svo að vera í öllum til- vikum," svaraði lávarðurinn, gekk hratt burt og gaf ekki færi á lengra samtali. eioini a nn a /zaó ttn ót Allt frá árinu 1964 hafa verið haldin regluleg landsmót í kastkeppni á vegum Landssambands stangaveiðifélaga, þar sem farið hefur verið nákvæmlega eftir reglum alþjóða kastsambandsins (I.C.F.). Hafa af skiljanlegum ástæðum eingöngu, eigum við að segja „keppniskastarar" tekið þátt í þess- um mótum, með sérstökum keppnisáhöld- um. Það er óhætt að fullyrða að með þessu brautryðjendastarfi hafi (enda þótt mót hafi verið haldin áður m. a. af Kastklúbbnum) L. S. átti sinn þátt í að efla áhuga manna fvrir kastíþróttinni og sameina þá, enda hef- ur þátttaka verið góð og oft hefur náðzt frábær árangur. Stjórn L. S. hefur einnig haft sérstakan áhuga á að gangast fyrir veiðimannakast- mótum, þar sem hinn venjulegi stangaveiði- maður, með sín tæki, getur tekið þátt í. Slíkt mót fór nú fram á Hörðuvöllum í Hafnarfirði laugardaginn þann 7. október síðastliðinn. Auglýstar keppnisgreinar voru fjórar, tvær í flugulengdarköstum og tvær í beitulengdarköstum, eða nánar tiltekið eins og hér segir: 1. fl. A einhendis framþung lína, há- marksþyngd 18 gr. no. 10 1. fl. B einhendis skotlína hámarks- þyngd 18 gr. no. 10 2. fl. Beitulengdarköst, einhendis hámarksbeita 12 gr. 3. fl. Beitulengdarköst, tvíhendis hámarksbeita 18 gr. 44 VEIÐIMAÐURINN

x

Veiðimaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.