Veiðimaðurinn - 01.12.1986, Page 17

Veiðimaðurinn - 01.12.1986, Page 17
laxi. Væntanlega munu ár í nágrenni Reykjavíkursvæðis fá mest af honum. Menn spyrja sig því óhjákvæmilega, hvort þessi þróun komi til með að hafa óæskileg áhrif á viðkomandi ár. Þar sem áhrif á veiði yrðu a.m.k. í upphafí sennilega jákvæð, má segja að einu hugsanlegu neikvæðu áhrifm væru einhverskonar erfðafræðileg mengun, þ.e. hafbeitar- laxinn mundi blanda blóði við þá stofna sem fyrir eru. Sú spurning vaknar hvort stofninum væri hætta búin. Ekki er vafi á því að hafbeitarstofn, sem ætti uppruna sinn í nágrenni viðkomandi vatnasvæðis, gerði hér minnstan skaða. Hafbeit og ratvísi Mikið hefur hér verið rætt um svo- kallaðar lyktarslóðarkenningar, þ.e. að gönguseiði myndi slóð í sjó fyrir lax til að rata eftir, og hver stofn hafi meðfædda lykt. Samkvæmt þeim kenningum gæti blöndun hafbeitarstofns og náttúrulegs stofns haft óæskileg áhrif á ratvísi. Þess skal getið, að það er nánast ekkert í haf- beitarrannsóknum hér á landi né annars staðar sem bendir til þess, að áðurnefndar kenningar eigi við rök að styðjast. An þess að fara út í smáatriði vil ég aðeins minnast á nokkur atriði. 1. Seiði af Kollafjarðarstofni, alin þar og sleppt í ýmsum hafbeitarstöðvum og ám, svo sem Lárósi á Snæfellsnesi, Voga- laxi á Vatnsleysuströnd og Elliðaám hafa sáralítið villst í Kollafjarðarstöðina þó hún sé í sumum tilvikum mjög nærri (mynd 2 og tafla 1). 2. Upplýsingar úr sleppitilraunum í til- raunastöðinni í Ims í Noregi hafa sýnt að stofnar, sem aldir eru í eldisstöð og sleppt í önnur vatnakerfi heldur en heimaána, skila sér ætíð á sleppistaðinn. Þeir skila sér lítið sem ekkert í ána sem klakið var tekið úr né eldisstöðina þar sem seiðin voru alin. 3. Annað gott dæmi sem sýnir, hve flók- in ratvísi laxins er, varðar flutning á göngu- laxi úr Kollafirði austur í Kálfá í Gnúp- verjahreppi fyrir allmörgum árum. Af um 150 löxum sem fluttir voru, gengu tveir síðsumars aftur í Kollafjarðarstöðina og höfðu þá hopað niður Þjórsá til sjávar og fyrir Reykjanes til Kollafjarðar að nýju. Bandarískar upplýsingar varðandi Kyrrahafslax styðja þessa reynslu. Þar hafa menn komist að því að laxinn notar bæði segulsvið jarðar og ýmis himintungl til að rata, ásamt lykt heimaárinnar. Tekið skal fram, að það sem hér hefur verið sagt, á sérstaklega við göngur laxins meðan hann er í sjó. Það kastar í engu rýrð á það, að laxinn notar lyktarskynið til að þekkja ána sína á síðustu stigum göng- Endurheimtustaðir Kollafjörður Elliðaár Ártúnsá Sleppistaður Fjöldi Prósent Fjöldi Prósent Fjöldi Prósent Kollafjörður .................................. 958 94,9 39 3,9 4 0,4 Elliðaár Bein slepping ................................... 1 2,2 44 97,8 0 0 Elliðaár Sleppitjörn ..................................... 5 3,2 151 96,8 0 0 Artúnsá Bein slepping ................................... 4 33,3 1 8,3 7 58,3 Artúnsá Sleppitjörn .................................... 22 24,2 4 4,4 65 71,4 Tafla 1. Fjöldi eldisseiða, sem ekki rötuðu á sleppistaðinn í merkingartilraun 1975. VEIÐIMAÐURINN 15

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.