Veiðimaðurinn - 01.12.1986, Blaðsíða 27
Stjórn L.S., f.v. Matthías Einarsson, Akureyri, Sigurður Sveinsson, Selfossi, Hjörleifur Gunnarsson,
Hafnarfirði, Rósar Eggertsson, Reykjavík, Rafn Hafnfjörð, Reykjavík, formaður, Sigurður Pálsson,
Keflavík og Sigurður Bjarnason, Reykjavtk. A myndina vantar Garðar Þórhallsson, Reykjavík. Ljósm. MÓ.
Einnig vil ég þakka öllum stjórnar-
mönnum og varamönnum fyrir mjög gott
og ánægjulegt samstarf á liðnu starfsári,-
þar hefur aldrei borið á skugga.
Þótt hér standi nú nýr formaður í stafni,
þá er þess nú ekki að vænta að nein stökk-
breyting verði á starfsemi L.S. Eg kem ef
til vill með að segja hér að ári eins og flestir
þeir fulltrúar er fluttu hér fréttir frá sínum
félögum - „starfið var með hefðbundnum
hætti“.
Þó munum við sjálfsagt halda áfram á
þeirri braut, sem þegar hefur verið mörk-
uð, en það er að kynna stangveiðina sem
íþrótt en ekki sem atvinnu.
Ég mun einnig beita mér fyrir því að
fmna L.S. einhvern annan fastan tekju-
stofn en árgjöld félaganna, sem hvergi
nærri hrökkva fyrir föstum útgjöldum s.s.
þátttöku okkar i NSU, húsaleigu, örfáum
ferðum til aðildarfélaganna og einhverju
prentverki.
Kemur þá fyrst upp í hugann útgáfa
veiðikorta sem allir stangveiðimenn, bæði
innlendir og erlendir, þyrftu að bera á sér,
til þess að fá keypt veiðileyfi. Þetta er ekki
fullmótað í mínum huga, en ætti að vera
auðvelt í framkvæmd, því mér skilst að slík
veiðikort séu viðhöfð í öllum okkar
nágrannaríkjum og jafnvel í Banda-
ríkjunum.
En ekki get ég dulið áhyggjur mínar af
stangveiðifélögunum, því heyrst hafa þær
raddir, frá nokkrum veiðiréttareigendum,
og sá hópur fer stækkandi, að stangveiði-
félögin séu þeim óþörf.
Það er ætlast til þess af okkur að við í
raun búum til veiðimenn, með því gífur-
lega félagsstarfi sem stangveiðifélögin
standa fyrir, s.s. með kennslu í meðferð
VEIÐIMAÐURINN
25