Veiðimaðurinn - 01.12.1986, Blaðsíða 20
þess er kostur, annars úr nærliggjandi
ám með svipaða eiginleika.
2. Skipta landinu í hólf að því er fisk-
sjúkdóma varðar og takmarka flutning á
hrognum og eldisfiski milli þessara
hólfa.
3. Takmarka sjókvíaeldi og hafbeit við
stofna innan viðkomandi áhættuhólfs.
4. Akvarða lágmarksfjarlægð hafbeitar-
stöðva frá laxveiðiám.
5. Akvarða lágmarksfjarlægð sjóeldis-
stöðva frá laxveiðiám og takmarka fram-
leiðslumagn.
6. Banna eldi erlendra stofna í sjókvíum
í nágrenni laxveiðiánna.
Lokaorð
Hér hefur verið reynt að draga fram
helstu atriðin í mjög flóknu samspili milli
fiskeldis í landinu og náttúrulegra vatna-
kerfa, sem við viljum vernda í því formi
sem við þekkjum þau. Margt er þó óljóst
um hugsanleg áhrif, og aðgerðir miða því
oft að því að byrgja brunninn áður en barn-
ið er dottið ofan í. Við sjáum fyrir okkur
mistök nágranna okkar og ættum að geta
lært af þeim. Hins vegar megum við ekki
gleyma að fískeldi og hafbeit geta verið
tæki til að bæta ástand vatnakerfanna, ef
rétt er að því staðið.
Þórarinn Kristjánsson, einn af stofnendum Stangaveiðifélags Reykjavíkur og nú nr. 3 áf'élagaskránni, varð
áttrceður þann 26. október s.l. Þórarinn hefur alla tíð frá þvífélagið var stofnað verið traustur liðsmaður
þess. Hann er áhugasamur og snjall veiðimaður og afbragðs fluguveiðimaður. Enn heldur hann til veiða,
en segist þó rétta öðrum stöngina oftar en áður var. Myndina tók danskur Ijósmyndari, Erik Bedell, fyrir
tveim árum. Veiðimaðurinn sendir Þórarni beztu árnaðaróskir í tilefni af nýafstöðnu merkisafmœli.
18
VEIÐIMAÐURINN