Veiðimaðurinn - 01.12.1986, Blaðsíða 26
H. Ólafsson, gerði grein fyrir happdrætti
L.S., sem hleypt hefur verið af stokk-
unum. Þá greindu fulltrúar frá starfsemi
aðildarfélaganna.
Framsöguerindi
Aðalumræðuefni fundarins var
„hugsanleg áhrif eldisfíska á náttúrulega
stofna“. Frummælendur voru Arni Isaks-
son veiðimálastjóri og Logi Jónsson
lífeðlisfræðingur. Framsöguerindi Arna
birtist hér í blaðinu. Urðu um þau miklar
umræður, unz gert var hlé á fundinum til
næsta dags. Um kvöldið var hóf á Hótel
Esju.
Tillögur að nýjum lögum
Fyrir fundinum lágu tillögur stjórnar að
nýjum lögum L.S. Urðu um þær allmiklar
umræður, sem einkum snerust um nafn
sambandsins, nánar tiltekið hvernig það
skyldi stafsett, og sýndist sitt hverjum. Er
samþykkt hafði verið breytingartillaga þar
að lútandi og önnur breytingartillaga til
viðbótar, voru tillögur stjórnar með
áorðnum breytingum bornar undir at-
kvæði. Vantaði nokkuð á, að þrír af
hverjum fjórum fundarmönnum greiddu
þeim atkvæði, og náðu þær því ekki fram að
ganga.
Ályktunartillaga
Eftirfarandi ályktunartillaga var borin
fram af Sigmari Ingasyni og Jóni G.
Baldvinssyni, og samþykkti fundurinn
hana:
Aðalfundur L.S. 1986 beinir þeirri
eindregnu áskorun til viðkomandi yfír-
valda, að gætt sé fyllstu varúðar vegna
smithættu og mengunarhættu frá laxeldis-
stöðvum. Við krefjumst ajgers banns við
innflutningi á laxahrognum erlendis frá.
Við vörum eindregið við hættunni á erfða-
mengun á villtum laxastofnum. Við
teljum, að hér sé svo mikil hætta á ferð, að
nú þegar verði að taka á þessum málum af
röggsemi. Það getur haft alvarlegar afleið-
ingar að láta reka á reiðanum í þessu máli.
Stjórnar- og nefndakjör
Fráfarandi formaður, Gylfi Pálsson, gaf
ekki kost á sér til endurkjörs, enda mun
hann dveljast erlendis til vors.
Stungið var upp á Rafni Hafnfjörð sem
formanni, og var hann samþykktur með
lófataki.
Rósar Eggertsson og Sigurður Pálsson
voru endurkjörnir í stjórnina til tveggja ára
og Garðar Þórhallsson var kosinn til eins
árs, en Hjörleifur Gunnarsson situr áfram
án kosningar. Matthías Einarsson og
Sigurður Sveinsson voru endurkjörnir
sem varamenn í stjórn, en auk þess hlaut
Sigurður Bjarnason kosningu.
Endurskoðendur voru endurkjörnir
Barði Friðriksson og Einar Stefánsson, en
Árni Guðjónsson til vara.
Aðalfulltrúar L.S. í N.S.U. til þriggja
ára voru kosnir Gylfí Pálsson og Sigurður
Pálsson, en varamaður Ólafur G. Karlsson.
Fulltrúi L.S. í Veiðimálanefnd, Karl
Ómar Jónsson, situr áfram án kosningar,
og Benedikt Jónmundsson sem varamaður.
Fulltrúar L.S. í Landvernd sitja einnig
áfram, þeir Bjarni Kristjánsson og Sigurð-
ur Pálsson, en Jóhannes Kristjánsson til
vara.
Lokaorð nýkjörins formanns
Að lokum tók nýkjörinn formaður, Rafn
Hafnfjörð, til máls og sagði:
Það er nú komið að lokum þessa aðal-
fundar. Eg vil þakka fyrir það traust sem
mér er sýnt með því að kjósa mig sem
formann og ég vona að ég sé þess trausts
verður.
24
VEIÐIMAÐURINN