Arkitektúr og skipulag - 01.04.1992, Blaðsíða 64
Stí Hall^ríaMSoi íl húsgai 1 Jna
1ONÚ 1
STILL
HÚSGAGNA
Nýlega er komin út á
vegum IÐNÚ -
útgáfunnar bókin
Stíll húsgagna eftir
Helga Hallgrímsson húsgagna-
arkitekt. Það var sérstaklega
ánægjulegt að hafa þessa bók í
höndum, því lengi hefur verið
skortur á slíkri yfirlitsbók á
íslensku.
Helgi Hallgrímsson var kenn-
ari við Iðnskólann í Reykjavík
í áratugi og þar af yfirkennari í
16 ár og kenndi þar m.a.
stílsögu frá því hún hófst við
skólann 1970 og þar til hann
lét af störfum 1984. Allan
þann tíma notaðist Helgi
meira og minna við ljósritað
efni, sem hann tók saman úr
erlendum bókum.
Það er mikill fengur í því, að
jafn reynsluríkur maður í
kennslu skyldi koma þessu
fræðsluefni í bókarform, það
tryggir að búið er að fínslípa og
jafnvel pólera efnið.
Auðvitað hefur stílkennsla í
Iðnskólanum verið frekar
hliðarfag með öðru námi og
þurft því á knöppu formi að
halda, eins er með bókina, hún
er ákaflega skýr og hnitmiðuð
en öllum aðalatriðum til skila
komið.
Það má greinilega finna fyrir
því hjá höfundi, að þar fer
fagmaður. Honum verður
tíðrætt um handverkið sjálft
og mismunandi smíðakunnáttu
handverksmanna hvers tíma,
ekki síður en útlit hlutanna og
stíleinkenni þeirra. Þetta er
ekki ósvipað því þegar
húsgagnasmiðir skoða húsgögn;
þeir eru vísir til að snúa
gripnum í bak og fyrir og
athuga hvort spónlagt sé á
þeim stöðum, sem ekki sjást
alla jafna, prófa stöðugleika og
handfjatla öll samskeyti og
kanta af alúð.
Bókin er 72 síður að stærð í
A4 broti og ríkulega mynd-
skreytt (á þriðja hundrað
myndir), og áferðarfalleg.
Eg vil leyfa mér að senda
Helga Hallgrímssyni þakkir og
árnaðaróskir með þessa ágætu
bók og IÐNU' útgáfunni fyrir
þarft framtak. ■
Kjartan Jónsson innanhússarkitekt.
62