Arkitektúr og skipulag - 01.04.1992, Blaðsíða 46

Arkitektúr og skipulag - 01.04.1992, Blaðsíða 46
tilgerðarlegt látbragð. En tilvitnunin er yfirleitt meðvitað pastiche á stíleinkenni sem eru menningarleg almenningseign. RÝMI Það sem skiptir þó líklega mestu máli varðar það sem arkitektar hafa atvinnu af að framleiða - rými. Og það hefur orðið athyglisverð viðhorfsbreyting varðandi skilning á þessu hugtaki. Hinn móderni skilningur á rými byggðist á þrennu: 1. evklíðskri geómetríu (punktur, lína, plan og rúm) 2. mannlegum hlutföllum og víddum byggðum á stærðum og hlutföllum líkamans, 3. og því rými sem afmarkast af notagildinu, þ.e.a.s. ákveðnar athafnir afmarka sér rými, eða athafnarými. A grundvelli geómetríunnar og mannlegra hlutfalla er litið á hlutverk bygginga að laga sig að og þjóna athafnarýminu, eins og vél. Það var algengt að lýsa hlutverki bygginga með því að líkja þeim við vélar og verksmiðjur. Verksmiðjan var sú fyrirmynd sem var höfð í huga við framleiðslu á rými til að þjóna athafnarými sem hlutlaus og eftirlát skel. Og byggingin og þær athafnir sem þar fara fram áttu að falla saman eins og vel smurð vél. Hin moderníska bygging var lofgjörð til hins erilsama lífs borgarbúans sem er sífellt að vinna að einhverju, „framleiða” lífsgæði og ánægju. En nú er í auknum mæli farið að líta á rýmið sem miklu marg- ræðara fyrirbæri. Það rými sem skapast af menningu sam- félagsins, tæknivæðingu samgangna og boðskipta, sambýli fólks, og reynslu einstaklingsins, er marþættara en svo að hið geómetríska módel dugi til að lýsa því. Víddirnar þrjár eru vissulega alltaf til staðar, en eru aðeins ein (afar gagnleg) forsenda til að lýsa því - hvernig á að fella „nágrenni” inn í hnitakerfi? Staðir, umhverfi, leiðir, sem frá flatarmálsfræðilegu sjónarmiði eru eins, geta haft ólíka þýðingu fyrir fólk og þ. a. 1. haft áhrif á skynjun þess, umgengni og athafnir. Þessu má lýsa svo að sambandið milli flatarmáls-fræðilegrar lýsingar á rými og félagslegrar skynjunar á sama rými er í hæsta máta brigðult. Það er hæpið að segja fyrir um eitt með því að gefa sér annað sem forsendu. Þetta gerir það að verkum að arkitektinn hefur aldrei algjört vald á því rými sem hann er að reyna að framleiða. Það er ekki hægt að einangra rými nema í mjög takmörkuðum skilningi. Rýmið á það til að hlaupa út undan sér í óvæntar áttir. En þetta hefur líka orðið til þess að sumir arkitektar hafa reynt að brjótast út úr ísómetrísku hugs- unarmynstri og endurskoða þau grundvallarprinsíp sem hafa legið rýmissköpun til grundvallar. Til að leita nýrra leiða til að lýsa ólíkum gerðum af rými, þá hefur m.a. verið lagt til að við þurfum að læra að lesa borgina, hvers konar merkingu fólk leggur í sitt umhverfi og hvernig hinir ýmsu þættir borgarinnar, stórir sem smáir, skapa rými merkingu og búa til það sem mætti kalla „texta” byggðarinnar. I þessum tilgangi hafa verið fengin að láni bæði orðtök og hugmyndir úr bókmenntafræði, sem hefur verið í gerjun jafnhliða. Breski rithöfundurinn Jonathan Raban er einn þeirra sem hefur reynt að skoða stórborgina á nýjan hátt í bók sem heitir Soft City frá árinu 1974- Hún er nokkurs konar ferðabók, ekki um neina tiltekna borg, heldur frekar stórborgina sem hugarástand og menningarfyrirbæri. Borgin býður upp á að láta endurskapa sig, að láta laga sig að því formi sem hver og einn getur lifað í... Borgir eru ólíkar þorpum að því leyti að þær eru þjálar í eðli sínu. Við mótum þær í okkar ímynd, og þær móta okkur vegna þess viðnáms sem þær veita þegar við reynum að stimpla okkar eigin form á þær. Að þessu leyti er það viss list að lifa í borg, og við þurfum að tala um það sem list, eða sem stíl, til að geta lýst því sérkennilega sambandi milli manna og efnis sem kemur fram í þeim óslitna skapandi leik sem borgarlífið er. Borgin eins og við ímyndum okkur hana, hin mjúka borg blekkinga, goðsagna, metn- aðar, martraða, er raunveruleg, jafnvel raunverulegri en hin harða borg sem við staðsetjum á korti og í tölfræði, eða í félags- fræðilegum, landafræðilegum og byggingarlistarlegum rannsóknum. ■ 44
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Arkitektúr og skipulag

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.