Arkitektúr og skipulag - 01.04.1992, Side 86

Arkitektúr og skipulag - 01.04.1992, Side 86
Model af MFA. Ministry of foreign affairs Ryadh. Henning Larsen. Villa með hornglugga. Tage Lyneborg. Tillaga undir áhrifum frá Venturi. Tage Lyneborg. Handelsh0jskolen í Kbh. Henning Larsen. sláandi einfaldleik. Mér fannst ég verða að kynnast þessum meistara og fór á miðju námsári inn á teiknistofuna þar sem allt sauð og kraumaði, menn greinilega ringlaðir yfir velgengninni. Tókst mér að ná athygli framkvæmdastjóra sem vantaði mann strax, og til var ég. Um fjögura ára bil vann ég þarna samhliða námi. Þetta var ótrúlegur skóli, teiknistofa sem er í fararbroddi og fær fjölda áhugaverðra verkefna, mitt á umbrotatímum er kraumandi suðupottur skoðanaskipta og sá frjóasti jarðvegur sem ung arkitektaspíra getur lent í. Umtalaðasti ungi arkitektinn var Tage Lyneborg sem þá var nýbyrjaður sem kennari á akademíunni. Hann vinnur úr sínum verkum á mjög danskan hátt, er sú manngerð sem Danir eiga blessunarlega nokkra af. Stór drengur, múrari sem sökkti sér í tónlist (franskan impressionisma) og síðan tók hann skrefið í nám með mýktina og neistann í augum. Hann segist sjálfur vera undir áhrifum frá nýklassíkinni og amerrískum tréarkitektúr. I verkum hans má lesa hrifningu af Venturi. Hans arkitektúr er ljóðrænn og jákvæður, vinnuaðferð hans er beinskeytt og leikandi. Hann segir að hann vilji að hús fái að vera eins og hús á teikningum barnanna. Hann hefur að mínu mati haft mest áhrif á mína kynslóð arkitekta. Hinn margnota (ofnota) 45° horngluggi (karnap) er klárt frá honum kominn. Hans Hollein hlýtur að koma upp í hugann þegar um þennan tíma er fjallað. Það hafði alltaf vakið forvitni mína hve frjálslega hann fór með augljósar tilvitnanir í verkum sínum, ásamt fullkomnu virðingarleysi fyrir hefðbundinni efnisnotkun. Vinur minn, sem hafði unnið á kontór Holleins, útvegaði mér viðtal við meistarann sem ég svo heimsótti. Heimsókn til Vínar opnaði augu mín fyrir tilurð og grunni postmódernismans, e.t.v. einhver skilningur á hinu, hve ríkan þátt staðbundin einkenni og hefð 84

x

Arkitektúr og skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.