Arkitektúr og skipulag - 01.04.1992, Blaðsíða 95
Efri mynd: Grunnmynd 1. hæðar.
Neðri mynd: Snið og hornvörpun.
áratugarins, teiknað af Skarphéðni Jóhannssyni. Þessi hús
eru mjög áþekk að stærð, en ólík í útliti, og er um 70 m. fjar-
lægð á milli þeirra.
I greinargerð með vinningstillögunni segir m.a.: Viðviljumí
þessari tillögu gefa nýbyggingunni veglegan sess í umhverfi
sínu í samræmi við hlutverk henr.ar. Samt sem áður er þess
vandlega gætt að ganga í engu inn á umráðasvæði Gamla
skóla í götumynd Eyrarlandsvegar eða að þrengja um of að
hinu friðaða húsi. Við úrlausn þessa verkefnis er lögð áhersla
á að allar byggingar Menntaskólans vinni saman og myndi
eina heild, bæði hvað varðar innra skipulag og ytra útlit.
Nemendur og kennarar eiga að geta ferðast hindrunarlaust
milli allra staða innan skólans og verið í vissu um að þeir séu
allan tímann í sama skólanum.
I þessum tilgangi eru helstu samkomustaðir og
aðalumferðarpunktar staðsettir miðsvæðis, en kennsluálmur-
nar, þ.e. Gamli skóli og Möðruvellir, látnar standa sem
útverðir skólans. Við skipulag lóðarinnar er göngustígurinn,
sem liggur eftir endilangri lóð Menntaskólans, látinn halda
sér og mynda ás, sem tengir saman vestur- og austurhluta
lóðarinnar. Annar mikilvægur ás í þessari tillögu er gangur,
sem tengir saman Gamla skóla og Möðruvelli, en við hann
standa eða tengjast á annan hátt öll rými nýbyggingarinnar.
Nýbyggingin er í raun tvær byggingar, aðalbygging og bóka-
safn. Þær standa sitt hvorum megin við göngustíginn og
myndast á milli þeirra torg, inngangstorg Menntaskólans.
Bókasafnið er norðan við stfginn og hefur hluti trjákransins
verið numinn brott og bókasafnið sett inn í staðinn. Því er
snúið þannig að það stendur skakkt í bilinu og myndast með
því spennandi samspil milli húss og garðs. Bókasafnið sjálft er
á jarðhæð og snúa stórir gluggar inn í garðinn, sem við það
verður hluti af lestrarumhverfi safnsins.
I umsögn dómnefndar segir m.a.: Tillagan felur í sér einnar
hæðar aðalbyggingu og tveggja hæða bókasafnsbyggingu með
látlausu og stílhreinu yfirbragði. Innri rými eru fjölbreytt og
tengingar innanhúss góðar og tengingar við önnur kennslu-
hús ágætar og fella þau í eina starfræna heild. Gangar framan
við kennslustofur eru rúmir og vistlegir. I bókasafni er opið
milli lestrarsalar og vinnurýmis kennara sem telja verður
ókost svo og legu skrifstofu bókavarðar. Vörulyfta við bóka-
safnið er á röngum stað. I húsinu er auðvelt að uppfylla ákvæði
um brunavamir, þ.á m. rýmingarleiðir.
Tillagan felur í sér bestu lausnina að mati dómnefndar hvað
varðar gott og vistlegt skólaumhverfi í víðasta skilningi.
Alvarlegir annmarkar felast aftur á móti (því að fjarlægja þarf
núverandi íþróttahús og skólinn að vera án húsnæðis fyrir þá
starfsemi nema aðstaða verði sköpuð annars staðar. ■
93