Arkitektúr og skipulag - 01.04.1992, Side 92

Arkitektúr og skipulag - 01.04.1992, Side 92
\ a r 1 “1 i r *===== ir t : : e t znzfzi' z Tl g-l munandi auðlesnar út úr heildinni; hér er það frekar söguleg þekking, sem veitir viðkomandi svör. Það má geta sér til um að stjórnskipun fyrri tíma á Islandi hafi lagt sitt af mörkum varðandi skipulag seinni tíma. Til að mynda má nefna Amarhólinn, sem alveg frá upphafi bæjarmyndunar hefur fengið að liggja svo til óáreittur allt fram til dagsins í dag, en hann var hluti af þeirri lóð, sem umlukti núverandi Stjórnarráðshús, er tilheyrði í þá tíð embætti Danakonungs. Svo óáreittur hefur hóllinn verið að ekki einu sinni hefur verið hlúð að honum gagnvart umhverfi hans, sem á liðnum og á komandi árum verður alltaf áleitnara. Framtíðaráform varðandi umferð þessa svæðis munu rétta margt við, en í leiðinni skapa galla eins og til dæmis fyrir Arnarhólinn. Arnarhóllinn hefur fram til þessa verið aðalvettvangur fjölmargra útihátíða, en í framtíðinni munu stór gatnamót við rætur hólsins keppa um áheyrendurna. En víkjum aftur að bæjarheildinni. Húsaröð Skúlagötunnar liggursamsíðasjávarsíðunniogmyndarákveðinnborgarjaðar. Framhald hans í Kvosinni vísar annars vegar meðfram rótum holtsins inn f Miðbæinn og hins vegar út eftir Tryggvagötu, sem eins og bergmál gömlu fjörunnar í Hafnarstræti sveigist henni samsíða upp í holtið vestan megin Kvosar. Borgar- jaðarinn flosnar upp til móts við Kvosina, þar sem hafnar- svæðið á uppfyllingunni (Austurbakkinn) og Miðbærinn renna saman í eitt, en myndast aftur þar sem húsaröðin við Tryggvagötu, Tollstöðin, Hafnarhúsið og Hafnarhvoll, af- markar hafnarsvæðið gagnvart Miðbænum. Þessar bygging- ar ásamt þeirri sem vantar austan megin við Tollstöðina mynda nokkurs konar ytri jaðar Miðbæjarins í kvosinni. Byggð Miðbæjarins er í eðli sínu innhverf, þ.e. þrátt fyrir nálægð við hafið stuðlar hún lítið sem ekkert að tengslum mannlífsins við ltfgjafa þess. Hafnarstarfsemin hefur fram til þessa ekki gefið mörg tilefni til þess, en nú þegar ýmsar breytingar eiga sér stað (vöruhöfn leggst niður) mætti hleypa lífsneista í tengsl miðbæjarlífsins við höfnina og hafið. Slík tengsl byggjast á aðdráttarafli þess sem í boði er,. það þarf að 90

x

Arkitektúr og skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.