Arkitektúr og skipulag - 01.04.1992, Blaðsíða 33
SNIÐ A-AA
KRINGLUTORG
ÞRÁINN HAUKSSON
landslagsarkitekt
Hönnun: Landslagsarkitektar
Reynir Vilhjálmsson og Þráinn
Hauksson.
Verkkaupi: Borgarskipulag og
Gatnamálastjórinn í Reykjavík.
Samstarfsaðilar: Verkfræðingar
VST og Garðar Lárusson,
Kristinn Hrafnsson, mynd-
höggvari, Einar Þorsteinn
Asgeirsson (athugun á
yfirtjöldun).
SKIPULAGSFORSENDUR
I deiliskipulagi Kringlusvæðisins
hefur frá upphafi verið gert ráð
fyrir torgi milli Borgarleikhúss,
Verslunarmiðstöðvarinnar
Kringlunnar og Borgarkringlunn-
ar. I skipulaginu var ennfremur
ráðstafað lóðum fyrir Borgar-
bókasafn og Landsbankabygg-
ingu, en á meðan ekki liggja fyrir
ákvarðanir um byggingu þeirra
mannvirkja, verða lóðirnar
notaðar undir bílastæði. Meira að
segja hafa verið uppi hugmyndir
um að byggja þar bílastæðahús
vegna hins mikla umferðarálags á
Kringlusvæðið.
UMFERÐ BIFREIÐA OG
GANGANDI FÓLKS
Kvöð er um leið fyrir slökkvibíla
um sundið milli Kringlunnar og
Borgarkringlunnar. Farið var fram
á að leigubílar ættu möguleika á
viðsnúningi á torginu. Ennfremur
er gert ráð fyrir aðkomu
flutningabifreiða í tengslum við
uppákomur á torginu.
Mikilvægar gönguleiðir liggja að
svæðinu og um það.
Almenningsrými bygginganna
beinast að torginu og að því liggja
skyndibita-, veitinga- og
skemmtistaðir.
RÝMISMYND TORGSINS
Kringlan og Borgarkringlan
mynda þægilega stórt rými sem
snýr vel við sól. Sundið milli
bygginganna rýrir þó dvalar-
möguleika, því norðanstrengur á
greiða leið í gegn. Ohægt er um
vik með skjólmyndun vegna
brunavarnaleiðarinnar. Afmörk'
un rýmisins til suðausturs er ekki
jafnskýr. Rýmismyndandi bygg-
ingar eru handan aðliggjandi
gatna, íbúðir aldraðra V.R.-
manna og Verslunarskólinn.
Borgarleikhúsið afmarkar torgið
að suðvestanverðu og er gólfhæð
þess tæpum 2 metrum hærri en
jarðhæðir verslunarbygginganna.
MARKMIÐ
Markmið með skipulagi torgsins
er að skapa aðlaðandi borgar-
umhverfi, sem gefur möguleika á
fjölbreyttu mannlífi og
aðliggjandi byggingum
tilhlýðilegt rými. Sérstaklega eru
hafðir í huga annars takmarkaðir
útivistarmöguleikar á svæðinu.
31