Arkitektúr og skipulag - 01.04.1992, Síða 72
1. verðlaun: Ragnhildur Skarphéðinsdóttir, Ögmundur Skarphéðinsson.
Arkitektamir Guðjón Bjarnason og
Gunnar Borgarsson hlutu þriðju
verðlaun. Þrjár tillögur voru keyptar:
tillaga arkitektanna Hauks
Viktorssonar, Helga Hjálmarssonar
og Vilhjálms Hjálmarssonar, tillaga
Kolbrúnar Ragnarsdóttur arkitekts og
tillaga arkitektanna Ragnars
Olafssonar og Smára M. Smárasonar.
UMSÖGN DÓMNEFNDAR UM
ÞÆR TILLÖGUR SEM HLUTU
SAMEIGINLEG 1. VERÐLAUN
Höfundar: Ragnhildur
Skarphéðinsdóttir, landslagsarkitekt
FÍLA.
Ögmundur Skarphéðinsson, arkitekt
FAÍ.
Aðaláhersla í tillögunni er sambúð
byggðar og náttúru, með ríka áherslu
á sjálfstæða áfanga uppbyggingar.
Aðalsmerki tillögunnar er varfærni
og ítarleg úrvinnsla á nýtingu
náttúrulegra gæða til útivistar á
nesinu. Heildarskipulag byggðar er
einfalt og umferðarkerfi skilvirkt og
byggir að mestu á óbreyttu
aðalgatnakerfi. Landnotkun er góð
og fyrirkomulag og gerð stígakerfis í
hreppnum eru áhugaverð. Ekki er
gerð grein fyrir fyrirkomulagi
kirkjugarðs í hreppnum. Aðkoma að
forsetasetri er óbreytt, bílastæði
sunnan vegar að kirkju er til lýta.
Hugmynd að fyrirkomulagi lóðar
sunnan móttökusalar mjög
áhugaverð. Gönguás milli setursins
og miðhverfis er endasleppur.
Tillagan gerir best allra tillagna grein
fyrir útivist í Bessastaðanesi enda
þótt til álita komi fjölbreyttari
útivistarmöguleikar án þess að spilla
framtfðarnýtingu svæðisins. Erfitt
getur reynst að móta heilsteypt
yfirbragð á miðbæjarsvæði. Það er
fremur gisið, nýting lítil og tekur lítið
mið af núverandi byggð. Þó er
yfirbragð húsþyrpingar í kjarna
svæðisins mjög áhugavert.
Greinargerð tillögunnar er til
fyrirmyndar og framsetning öll skýr.
Tillagan var meðal þeirra, sem teknar
voru til sérstakrar umfjöllunar.
SAMEIGINLEG 1. VERÐLAUN
Höfundar: Batteríið - arkitektar;
Jón Ólafur Ólafsson, arkitekt FAI.
Sigurður Einarsson, arkitekt FAÍ.
Meginhugmynd tillögunnar er ás,
sem liggur þvert yfir Álftanes frá
vestri til austurs og tengir saman
byggðina í hreppnum, forsetasetrið
og Bessastaðanes á áhugaverðan hátt.
Fyrirkomulag byggðar og annarrar
landnotkunar er mjög gott. Gerð er
grein fyrir stígakerfi meðfram strönd-
inni í texta sem tengist vel stígakerf-
um byggðarinnar. Hugmynd að
brúarbyggingu og stjórnsýslu í
Bessastaðanesi er áhugaverð, en ekki
raunhæf í fyrirsjáanlegri framtíð. Þótt
þessi þáttur tillögunnar verði ekki að
veruleika, hefur hann engin áhrif á
meginþætti tillögunnar að öðru leyti.
Ef af brúartengingu verður í
70