Arkitektúr og skipulag - 01.04.1992, Page 93

Arkitektúr og skipulag - 01.04.1992, Page 93
höfða til borgarbúans hvort sem er í daglegu amstri eða í frítíma hans. Byggingar Tryggvagötunnar eru hvað þetta varðar ekki nógu sterkt aðdráttarafl. Svæðið austan megin við þær í áttina að byggingu Seðla- bankans er tilvalið til að vega upp á móti þessari deyfð við dyr hafnarbakkans. Höfundur leggur til að þarna megi staðsetja „Hús Borgarinnar", Menningarmiðstöð, sem með litríkri starfsemi myndi laða fólksfjöldann til sín. I leiðinni væri nauðsynlegt að hafnarsvæðið sjálft ætti þátt í því að kalla þarna miðbæjarlíf fram. Til að mynda mætti sameina þar lífræna og andlega fæðu íslensku þjóðarinnar með því að reka þar fiskimarkað í mun smærri stíl en í dag og reisa þar veglega bókahöll fyrir Borgarbókasafn Reykjavíkur, sem gæti einnig falið í sér ýmiss konar þjónustu og upplýsingastarfsemi fyrir innlenda og erlenda ferðamenn, nútímafæðu þjóðfélagsins. í kjölfar alls þessa yrði „Hús Borg- arinnar” í jaðri Miðbæjarins mikilvægur hlekkur út á við, bæði í bæjarheildinni svo og í iðu mannlífsins. Hér á eftir fer kynning á tillögu höfundar að „Húsi Borgarinnar” og markmiðum hennar. Veðurfar og efnisfátækt íslenskrar náttúru sköpuðu hefð torfbæjanna, sem aðlöguðust umhverfi sínu. Aðeins burstir þeirra gáfu til kynna að um mannabústaði væri að ræða svo og andlit sumra þeirra. I iitadýrð sinni sköpuðu þau hinu náttúrlega ívafi andstæðu. Sama er að segja um borgina, hina byggðu náttúru mannsins. „Hús Borgarinnar” er ívitnun í þessa hefð þar sem það við rætur Arnarhólsins sameinast honum. Ut á við, aftur á móti, þar sem mannlífið bærist í sinni þroskuðustu mynd, sameinast það margbreytilegu andliti Miðbæjarins. Eins og aðrar byggingar bæjarins er „Hús Borg- arinnar” barn síns tíma. Markmiðið með„Húsi Borgarinnar” neðst í hólnum er að gefa bæjarheildinni þá mynd, sem henni er eðlislæg, þ.e. að fullkomna húsaröðina á mótum holts og kvosar, eins að skapa tengsl í uppflosnuðum borgarjaðrinum frá Skúlagötunni út í Tryggvagötu. „Hús Borgarinnar”, sem hlekkur í Borgar- jaðrinum skapar virðulega aðkomu inn í Miðbæinn. Byggingin, sem er opin öllum almenningi, opnast út til hafsins þ.e. úthverf bygging í borgarj aðrinum öfugt við byggingu Seðlabankans, sem með sterkri umgjörð sinni, útliti og í eðli sínu, er innhverf bygging í virðulegum sessi. „Húsi Borgarinnar er ætlað að gefa hólnum þá afmörkun, sem f kjölfar aukinnar umferðar er nauðsynleg, og um leið, sem menningarmiðstöð, að efla útihátíðahefð hólsins, sem tíðkast hefur í tugi ára. Sem innlægt borgarrými mun „Hús borgar- innar” veita hinum margvíslegustu hátíðum og uppákomum skjól í kenjóttu veðurfari. Markaðir og aðrir daglegir viðburðir, eins og t.d. ráðstefnur, vörusýningar eða listsýningar, munu einnig finna þar afdrep. Veitingastaða á innlægum torgum með tengsl út undir bert loft, bæði Amarhólsmegin og út á torgið til móts við höfnina, mun annars vegar gefa borgarbúum og öðrum gestum tækifæri til að njóta nærveru hólsins og Ingólfs í skjóli frá ysi og þysi Miðbæjarlífsins og hins vegar skapa nálægð og sjóntengsl við hafið og höfnina. „Hús Borgarinnar” færir mannlífið nær borgarjaðrinum og jafnvel út fyrir hann, til móts við hafið, lífgjafann mikla. Eins og tún bæjanna forðum er hafið tún borgarinnar. ■ 91

x

Arkitektúr og skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.