AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1993, Side 13

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1993, Side 13
EIRIKUR ÞORBJORNSSON formaöur TFI * TGÁFUMÁL Tæknifræðingafélag Islands bindur mikla vonir við samstarfið við VFI og Gest Ólafsson arkitekt um útgáfu þessa blaðs. Eins og flestum er kunnugt hafa VFI og TFI staðið sameiginlega að útgáfu Verktækni um nokkurra ára skeið og hefur það samstarf gengið með ágætum. Að auki hafa félögin staðið að útgáfu annarra rita eins og fréttabréfa þar sem fréttir úr starfi félaganna hafa komið fram og tilkynningar frá stjóm eða kjarafélögunum verið birtar. Milli TFÍ og VFÍ hefur verið rætt um nánara samstarf í útgáfumálum og hugmyndir verið uppi um sameiginlegt fréttabréf. Rétt að kanna alla möguleika á samstarfi t útgáfumálum milli arkitekta, tæknifræðinga og verkfræðinga og samnýta kraftana þar eins og annarsstaðar í rekstri þessara félaga. Markhópur upplýsinganna er á flestum sviðum sá hinn sami og hann þarf að fylgjast með því hvað er að gerast hjá hinum. ATVINNU- OG MENNTAMÁL Atvinnuleysi meðal tæknifræðinga hefur verið í lágmarki undanfarin ár en nú er að verða breyting á. Nú er svo komið að 5-10 tæknifræðingar eru á atvinnuleysisskrá í hverjum mánuði hjá félaginu. Fjöldi skráðra segir ekki alla söguna því algengt er að tæknifræðingar vinni sem iðnaðarmenn þar sem flestir þeirra hafa iðnnám sem grunnmenntun. Þessir aðilar eru ekki skráðir atvinnulausir af augljósum ástæðum þótt þeir hafi ekki vinnu sem hæfir þeirra framhaldsmenntun. Félagið hefur ekki haft þessa aðila á skrá yfir atvinnulausa en nokkuð algengt er að þeir leiti til félagsinseftirvinnu. Semlið íendurskipulagningufélagsins er unnið að breytingum á félagatalinu með það fyrir augum að skrá alla útskrifaða tæknifræðinga á landinu. Þetta er mikilvægt á tímum samdráttar í þjóðfélaginu því oft hefur verið þörf á að halda hópinn en nú er nauðsyn. Mikið hefur verið rætt og ritað um þörfina fyrir nýsköpun en minna framkvæmt. Það væri áhugavert að láta gera úttekt á því hverjir hafa verið frumkvöðlar í atvinnuskapandi hugmyndum og staðið að nýsköpun á Islandi undanfarin ár. Mig grunar að iðnaðarmenn og tæknifræðingar hafi komið þar mikið við sögu. Sú grunnmenntun sem flestir tæknifræðingar hafa sem iðnaðarmenn hefur verið gott veganesti út í atvinnulífið eftir 3 til 5 ára nám á háskólastigi. Okkur ber að styrkja iðnmenntun í landinu með öllum tiltækum ráðum og skapa þannig grunninn að vel menntuðum einstaklingum með alhliða verkþekkingu sem nýtist þeim við að skapa sér og öðrum störf, þjóðinni allri til heilla. Það hefur verið einkennileg umræða um menntamál meðal ráðamanna þjóðarinnar að undanförnu. Það á að draga úr aðgangi að langskólanámi með fjöldatakmörkunum og spara í skólakerfinu þegar mest þörfin er á að byggja upp velmenntaða einstaklinga til að skapa hér viðunandi lífskjör og finna nýjar leiðir í atvinnuskapandi tækifærum. Þessari umræðu verður að snúa við og taka stefnuna á móti svartsýnistali með uppbyggjandi umræðu um möguleika okkar í landi allsnægtar. Menntakerfið þarf að styrkja og þar með talið iðnnám, sem hefur orðið útundan í kerfinu, en ekki minnkamenntastig þjóðarinnar með takmörkunum til náms og niðurskurði. A samdráttartímum er einnig mikilvægt að styrkja stoðir undir endurmenntun og símenntun. TFI hefur lagt sitt af mörkum í þessum málum með því að standa að stofnun og starfsemi Endurmenntunarstofnunar Háskóla Islands ásamt VFÍ, BHM, Háskóla íslands og Tækniskóla íslands. Þar er unnið mjög mikilvægt starf í að bjóða góða endurmenntun á viðráðanlegu verði. FEANI Með tilkomu EES-samnings og sameiginlegs vinnu- markaðar í Evrópu verður nauðsynlegt að skilgreining menntunarstigs sé þannig úr garði gerð að samræmi sé milli landa og menntun í einu landi sé viðurkennd í öðru. Markmið FEANI, samtaka verk- og tæknifræðingafélaga í Evrópu, er m.a. að vinna að aukinni samheldni stéttarinnar og styrkja ímynd hennar. Samtökin standa að útgáfu s.k. EUR-ING skírteinis til þeirra sem hafa verk- eða tæknifræðingamenntun frá viðurkenndum skóla og a.m.k. 3 ár á háskólastigi og minnst 2ja ára starfsreynslu eftir útskrift. Þessi skírteini verða mikilvæg þegar landamæri eru að hverfa. Ég bind miklar vonir við samstarfið innan FEANI og vona að samtökunum hlotnist styrkur til að sameina stéttina til frekari dáða. ENDURSKIPULAGNING Á STARFSEMI TFÍ Stjóm TFÍ ákvað í lok síðasta árs að gera nokkrar breytingar á rekstri með það að markmiði að félagið yrði að nýju vettvangur allra tæknifræðinga í landinu. Það em alltof margir tæknifræðingar sem standa utan félagsins og við viljum gera allt sem í okkar valdi stendur til að sameina þá í TFI að nýju. I félaginu eru um 550 tæknifræðingar, í landinu eru um 950 með þessa menntagráðu. En hverju þarf að breyta og hvað heldur mönnum frá? Þessu er ekki einfalt að svara án þess að byggja svörin á viðhorfskönnun allra tæknifræðinga. Stjórnin hefur ákveðið að gera breytingar sem hún telur að komi til móts við þarfimar og þær athugasemdir sem okkur hafa borist í félagsstarfinu. Við ætlum að spara í rekstri og halda árgjöldum í lágmarki, taka upp fasta málfundi tvisvar í mánuði í hádeginu á mánudögum, vinna að því að fá aðgang að sumarhúsum fyrir félagsmenn og semja um ýmis hlunindi fyrir tækni- fræðingaífélaginu.Þessarbreytingarkomatilframkvæmda á næstu mánuðum og þegar hefur verið gripið til sparnaðaraðgerða og einföldunar í rekstri skrifstofunnar. Hversu mikið árgjöldin munu breytast kemur ekki í ljós fyrr en fjárhagsáætlun næsta árs verður lögð fram á 11
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.