AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1993, Blaðsíða 104
FJÖLBÝUSLÓÐIR
AFGANGSSPILDUR EÐA NOTHÆFT UMHVERFI
ÞRÁINN HAUKSSON
LANDSLAGSARKITEKT
Fjórbýli í Vesturbœnum. Leik- og dvalaraöstaöa ö föum fermetrum.
Eg var spurður hvort ég hafí fengist við að
hanna umhverfi félagslegra íbúða og ef svo
væri, hvort ég vildi gera því skil í þessu
tölublaði. Því var fljótsvarað að svo væri
ekki og þá sennilega vegna þess að þvf
miður tíðkast það yfirleitt ekki, hvort sem um félagslegar
íbúðir eða almennar fjölbýlishúsalóðir er að ræða. Að vísu
hefur verið gengið þokkalega frá umhverfi íbúða fyrir
aldraða víðs vegar um borgina, þó að það komist ekki í
hálfkvisti við það sem tíðkast í nágrannalöndunum.
Sú mynd sem flestir hafa í kollinum af fjölbýlishúsalóðum
er eyðileg slétt grasflöt með rólusetti og vegasalti úti á
víðavangi. Hvað lóðir við aðrar félagslegar íbúðirog fjöl-
býlishús varðar, þá skila verktakar þeim ýmist gróf-
jöfnuðum eða sléttuðum og grasþöktum (það sem gjaman
er kallað frágengin lóð í kaupsamningum) og þá sjaldnast
eftir fyrirfram ákveðinni hönnun. Þegar best lætur er farið
eftir þeim línum sem hönnuður viðkomandi byggingar
hefur lagt á byggingamefndarteikningum, og því miður
liggja þar sjaldnast metnaðarfull vinnubrögð að baki.
Glöggt auga getur numið að hér og þar hefur verið skvett
í þennan frágang slatta af peningum, án þess að það skili
sér í nothæfu umhverfi. Til dæmis steypa verktakar
gjaman stéttar allt í kringum byggingamar, sem ekki
verður auðveldlega breytt, og binda því allar frekari
útfærslur. Einnig er það árátta hér um slóðir að slétta lóð
fram í Ióðarmörk og þá jafnvel taka hæðarmuninn upp
með dýrum stoðveggjaútfærslum eða illsláanlegum
grasfláum. Manni liggur við að segja að oft hefði betur
verið heima setið en af stað farið, þegar um lóðarfrágang
byggingarverktaka er að ræða. Sé lóðinni skilað gróf-
jafnaðri, eiga íbúar alltaf möguleika á að láta vinna verkið
almennilega, og þannig hafa bestu fjölbýlishúsalóðimar
verið unnar. En auðvitað vantar í lög og reglugerðir
sterkari ákvæði um lóðarhönnun og lóðarfrágang við
fjölbýlishúsalóðir sem og nánari skilgreiningar í
kaupsamningum á því hvað telst fullfrágengin lóð.
Til eru margar undantekningar frá þeirri mynd sem hér
hefur verið dregin upp. Til dæmis í Árbæjarhverfi og við
Flyðrugrandann, þar sem skipuleg hönnun húsa hefur
hvatt menn til dáða. Fyrirkomulag bygginganna myndar
rými sólarmegin í tilverunni í gcðum tengslum við
stigaganga og í sjóntengslum við íbúðir. Uppgröftur er
nýttur til mótunar hóla og hæða, sem gerir landslagið hið
102