AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1993, Blaðsíða 54
Líkan,
TILLAGA TIL FREKARI SKOÐUNAR
Höfundar: Gestur Ólafsson, arkitekt/skipulags-
frœðingur, Póll Björgvinsson, arkitekt/bygginga-
meistari, og Þorsteinn Þorsteinsson, verk-
frœðingur.
Hús eru vel staðsett í landi með tilliti til hagkvæmni, en
tengjast illa leiksvæðum. Betri tengsl vantar einnig á milli
eystri hluta svæðisins og klapparáss. Bílastæðin á
miðsvæðum og útfærsla útirýma spilla tillögunni. lnnra
skipulagi íbúða er áfátt. Heildarlausn er hagkvæm, en
viðleitni til nýsköpunar er takmörkuð.
Tillagan er ein af þrettán, sem dómnefnd taldi koma
sérstaklega til álita í 2. þrep samkeppninnar.
MARKMIÐ
Meginhugmynd tillögunnar er að undirstrika sérkenni
svæðisins sem skiptist í tvö fbúðarsvæði með klapparrima
á milli. Hvort þessara íbúðarsvæða hefur sína kosti sem
leitast er við að nýta sem best með skipulaginu og að halda
rimanum milli þeirra óhreyfðum. Til þess að form landsins
haldist er byggðin lág eða ekki hærri en tvær eða þrjár
hæðir.
Ahersla er lögð á að byggðin myndi skjólgott umhverfi og
að allar íbúðir liggi eins vel við sól og útsýni og kostur er.
Leitast er við að auðvelda umferð gangandi fólks um
svæðið með gönguleiðum sem tengja byggðina við
skólalóð, útivist og þjónustu. Jafnframt þessu er haldið
góðri aðkomu bifreiða að öllum íbúðum.
Á eystra svæðinu, sem hallar lítillega í norður, mynda
íbúðarhúsin skjólgott rými sín á milli til ieikja og útivistar.
Að norðan og austan eru húsin höfð þrjár hæðir til þess að
mynda skjól fyrir ríkjandi austanátt. Innan svæðisins er
gert ráð fyrir að umferð sé hæg um sameiginlegt rými. Á
vestra svæðinu standa húsin við vistgötu sem liggur að
mestu eftir hæðarlínum landsins.
Markmið með þessari byggð félagslegra íbúða er að hún
sé einföld að gerð, vönduð en ódýr í byggingu.
Fjölbreytileika í mótun umhverfisins er náð með samspili
bygginga og landslags, ásamt góðri útfærslu aðstöðu til
útivistar.
Hvað varðar innra skipulag íbúðanna er megináhersla
lögð á að hægt sé að breyta þeim með tilliti til breytilegra
óska og þarfa. Þótt sá möguleiki sé alltaf fyrir hendi að fólk
geti skipt um íbúð þá eru alltaf margir sem vilja heldur geta
breytt íbúðum sínum sé þess auðveldur kostur. Óskir og
þarfir einstaklinga eru líka svo margbreytilegar á líftíma
íbúðar að það er höfuðatriði að hægt sé að aðlaga húsnæði
bæði að nýjum íbúum sem og breyttum aðstæðum og
heimilishögum. Einu föstu þættirnir í innra skipulagi
íbúðanna eru einn steyptur innveggur og staðsetning
frárennslisstofna.
Lagt er til að meira sé vandað til rýmis utan dyra en gengur
og gerist og einnig að íbúamir hafi þar forgang um notkun
gatna. Einnig er lögð áhersla á að komast að „rimanum" og
því útivistarsvæði sem honum íengist frá aðliggjandi
byggð.
52