AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1993, Blaðsíða 99

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1993, Blaðsíða 99
SVERRIR ÓLAFSSON Með verkum mínum er ég að koma til skila, skoðunum mínum og lífsvið- horfi auk þess að fá útrás fyrir mínar fagurfræðilegu, umhverfislegu og fél- agslegu vangaveltur. Form hlutföll „og fagurfræði eru aðeins hluti af heildar verkinu en ekki aðalatriði. Mér er hugleikið samspil höggmynda og byggingarlistar og má stundum til sannsvegar færa að verk mín minni frekar á byggingar eða húsgögn heldur en hefðbundin hugtök í myndlist. Þetta geri ég þó í alveg meðvituðum tilgangi. Það er mikilvægast fyrir mig að hugmyndafræðilegar forsendur verka minna séu beinskeyttar og klárar og ekki vefjist fyrir mér, með nokkrum hætti tilgangur minn með gerð verksins. Með öðrum orðum þá verða verk mín til af sterkri innri þörf og meðvitaðri nauðsyn, en aldrei af tilviljun eða athafna- þörfinni einni. Verkfærið sem ég nota til þess að koma skilaboðum mínum áleiðis er táknfræði, sem ég set fram sem pólitik án flokka eða landamæra. Meðal þeirra tákna sem mér eru hugleikin eru: stóllinn sem í mínum huga er tákn valdsins,turninn sem tákn um hégómann (fílabeinsturninn), barnaleikföng sem tákn um mannleg gildi, lífræn efni svo sem frækorn eða trjálauf sem tákn um móður jörð, lokaðar hirslur af ýmsu tagi, sem tákn skrifræðisins osfrv. Þessi tákn eru gjarnan mín hugarsmíð, en ég nota einnig gömul og viðurkennd tákn. Þá nota ég og gjarnan liti sem tákn eða sem áherslu á tákn og er því gjaman um endurtekningu þeirra að ræða í verkum mínum. Eg vinn verk mín í ýmiskonar efni og fer það aðallega eftir hugmyndafræðilegu inntaki þeirra hvert efnisvalið er. Aðal atriði er þó í mínum huga að táknfræðin sem ég nota verði ekki flóknari en svo að nokkuð auðvelt sé að skilja hugmyndafræðilegar forsendur verkanna. Mönnum er jafnan gjarnt að líta á sjálfa sig sem miðpunkt alheimsins frekar en eitt af sandkornum eyðimerkurinnar. Vegna þessa reyni ég að ná athygli áhorfandans með því að höfða til kímni hans blygðunarkenndar, hroka, hégómleika, dómhörku osfrv. Fyrir mér er Móðir Jörð í öndvegi og hlutverk okkar að þjóna henni og vernda. Aðeins með því móti, getur hún sinnt því hlutverki sínu að fóstra okkur og næra. Það er eðli peningahyggjunnar að ryðja úr vegi mannlegum gildum og þörfum Móður Jarðar. Ofan í Kleópötrunálin,1992. 97 KYNNING A LISTAMANNI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.