AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1993, Blaðsíða 49
Afstöðumynd.
ATHYGLISVERÐ TILLAGA
Höfundar: Hróbjartur Hróbjartsson, arkitekt, Richard
Ó. Briem, arkitekt, Sigríður Sigþórsdóttir, arkitekt, og
Sigurður Björgúlfsson, arkitekt.
Samstarf: Friörik Friðriksson, arkitekt, Indro I. Candi,
arkitekt, ÞórðurSteingrímsson, arkitekt, og Auður Björg
Ingadóttir, teiknari.
Skurður og hliðarmyndir.
Grunnmynd.
MARKMIÐ
Æskilegt er að skilja ekki athafnir íbúanna of mikið í
sundur, heldur þjappa þeim saman. Skapa vistgötur sem
félagslegan vettvang. Allir inngangar snúi að slíkum götum.
Aðalgönguleiðir fari um þær, en leikvöllum komið fyrir
miðsvæðis við þær. Ekki skilja umferð að, heldur gera alla
umferð jafnréttháa. Dreifa aftur á móti bílastæðum til að
dreifa umferðarþunga og fá ekki of stóra fláka í umhverfið.
Nota gróður og skjólveggi til að skapa skjól og rými í
tengslum við byggingar og aðrar einingar í umhverfinu.
Skapa íbúunum jafnframt skjólgóð einkasvæði, vel varin
fyrir innsæi frá götu.
Markmið tillögunnar er ennfremur að viðhalda hefð-
bundnum gæðum íbúða. Leggja til grunnmyndarlausnir
þar sem öll rými hafa glugga. Reyna að skapa „hjarta“
íbúðar með samtengingu eldhúss. borðstofu og stofu,
opna á milli þannig að birta streymi í gegnum íbúðimar.
Þvottur og geymsla séu leyst innan íbúða. Húsin séu
grönn, einföld og hagkvæm, og allar íbúðir hafi a.m.k.
tvær áttir, flestar þrjár áttir og inngang um útidyr. Sameign
í fjölbýli verði í lágmarki til að draga úr byggingar og
rekstrarkostnaði.
Höfundur setur fram athyglisverða hugmynd um mótun
þéttrar byggðar, en húsgerðir á eystri hluta svæðisins em
óhagkvæmar fyrir félagslega húsnæðiskerfið. Aðkoma og
næmmhVerfi húsanna eru aðlaðandi, en dýr í útfærslu.
Skipulagið er fallegt að ýmsu leyti og býður upp á
sveigjanleika. Heildarlausnin ber vott um nýsköpun og
fagleg vinnubrögð.
Tillagan er ein af þrettán, sem dómnefnd taldi koma
sérstaklega til álita í 2. þrep samkeppninnar.
46
47