AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1993, Blaðsíða 94
Skipulagsuppdráttur, staðfestur 1992.
gamalla húsa og uppbrotnu skipulagi nýbygginga með
tilliti til þeirrar byggðar sem fyrir er. Þetta gerði það að
verkum að útirými urðu óregluleg og ógreinilega afmörkuð.
Hæðir nýbygginga við Ráðhús og Sparisjóðinn voru
lækkaðar þannig að hæstu nýbyggingar skipulagsins yrðu
ekki hærri en 3 hæðir og ris.
Ákveðnar tilraunir til að tengja útirými við hafið endur-
speglast í skipulaginu frá 1967. I skipulaginu 1982 er
lokað algjörlega fyrir þessi tengsl og bílastæði án bygginga
lögð milli miðbæjar og fjöru.
Síðan 1982 hefur skipulagið verið endurskoðað tvisvar,
fyrst staðfest í maí 1992 og nú síðast í nóvember 1992.
Það helsta sem sú endurskoðun felur í sér er að ró og regla,
sem þó ríkti í skipulaginu, er nú endanlega rofin, þar sem
hluta smáu bygginganna er staflað saman í miðbæjar-
kjamann. Tvær þeirra lenda úti á miðju bílastæði, sem er
afar ósannfærandi tilraun til að tengja byggðina hafinu.
Við þessa breytingu hefur útirými við Hafnarborg tilviljun-
arkenndaafmörkun. SamkeppnistillaganviðHafnarfjarð-
arkirkju, sem byggir á uppbrotinni ásýnd á miklu byggingar-
mannvirki, er sannfærandi lausn á suðurhluta skipulagsins.
92
Tvöháhýsi, 6og 8 hæðireru sett inn í kjamann. Þarmeð
eru fyrstu tvö byggingarlegu markmið skipulagsins
þverbrotin. Það verður að segjast að upphafleg skipu-
lagshugmynd sé orðin útvötnuð í síðustu útgáfu skipu-
lagsins.
Það er alltaf auðvelt að gagnrýna og benda ekki á aðrar
lausnir í staðinn, og vil ég því kasta fram hugmynd sem
þróast hefur í umræðunni, ekki síst eftir þá útreið sem
skipulagið fékk á félagsfundi í Arkitektafélagi íslands
þann 20. janúar síðastliðinn.
Sú meginafstaða að slíta miðbæinn frá sjónum er að mínu
mati kolröng, því ein helstu gæði svæðisins fyrir utan legu
í skjóli hraunjaðarsins er nærveran við fjörðinn.
Skipulag verður að horfa til framtíðar og nægir að hrista
rykið af setningu úr núgildandi skipulagi: „...í framtíðinni
verði metin hagkvæmni þess að byggja enn frekar á hinni
nýju fyllingu. Verður þá yarla komist hjá að leysa bíla-
stæðavandann í kjöllumm eða sérstökum bflastæðahúsum.”
Það er fásinria að halda áfram að ýta Fjarðargötunni lengra
út í höfnina. Þannig verður hún ætíð til að slíta tengsl
miðbæjarins við sjóinn. Hún á að vera akstursgata í gegn-
j