AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1993, Blaðsíða 46
ATHYGLISVERÐ TILLAGA
Höfundar: Douglas Burnham og Ólafur Tr.
Mathiesen, arkitekt.
Aðstoð: Ingibjörg Haröardóttir og Olaf Quoohs.
Rúmmynd meö skuröi.
Tillagan er framsækin frá sjónarhóli byggingarlistar og
nýtur hún nýsköpunar og hugkvæmni höfundar. Aðkoma
að ásabyggingu liggur illa við sólu og staðsetning tveggja
hæða raðhúsa í skugga hærri byggðar orkar tvímælis.
Punkthús eru falleg, en geta vart talist hagkvæm. Utfærsla
bygginga er listræn og grunnmyndir íbúða athyglisverðar.
Heildarlausneráhugaverð, en svararvartþörfumfélagslega
húsnæðiskerfisins.
Tillagan er ein af þrettán, sem dómnefnd taldi koma sér-
staklega til álita í 2. þrep samkeppninnar.
MARKMIÐ
í fyrirhugaðri byggð við klapparima Gufunesáss hafa
höfundar unnið að sköpun umgjarðar samskipta fólks, er
beri yfirbragð og framhefji þann margbreytileika lífs er
finnst í þéttari hlutum borgarinnar. Með markvissu samspili
mismunandi byggingahluta, stíga og torga er skapaður
sterkur rammi betra mannlífs og lagður grundvöllur að
jákvæðum félagslegum samskiptum, í samlyndi við
sérstæða náttúru staðarins. Hér geta íbúar sótt heim í
mismunandi híbýli er þó tali sameiginlegt arkitektóniskt
tungumál. Hér er hægt að sækja á akur samvinnu í
matjurtagörðum eða við leikvöllinn. Hér er hægt að hverfa
frá dagsins amstri og njóta einveru, án einangrunar, í
turnum útsýnis. Hér er hægt að vakna við snjóinn í Esjunni.
Byggingum er skipt í þrjá meginhluta: ás, langhús og
punkthús, sem hver býr yfir eigin sérkenni. Þannig er
einhæfni vamað og íbúar geta kennt sig við mismunandi
heimkynni. í landslagi bygginga gegnir ásinn hlutverki
fjallsins, myndar garð sem byggðin hallar sér að og er þess
sterkasta einkenni. Lágreist langhúsið manngerir klappimar
og punkthúsin em kennileiti, líkt og tindar fjalla. Unnið er
að áréttun sjónbaugar í láréttu íslensku landslagi er spili
upp á móti lóðréttum vísunum til gangs himintungla. Útlit
er einfalt og látlaust og form hrein. Hugað er að hlutföllum
og samsvörun, kroppar hafðir grannir svo byggingar rísi
létt og fágað úr grundinni, þök að jafnaði flöt, lögð torfi og
hellum til áréttingar tengsla við náttúru landsins. Litir eru
sóttir í klapparimann.
Einfaltburðarvirki,einfaldarplanlausnirogjákvæðbeiting
endurtekninga stuðla að hagkvæmni í framleiðslu, en
fögur hlutföll, samræmi og formnotkun tryggja vandaðar
og góðar íbúðir. Notast er við hefðbundin byggingarefni,
44