AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1993, Page 50

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1993, Page 50
Líkan. TILLAGA TIL FREKARI SKOÐUNAR Höfundar: Gísli Halldórsson, arkitekt, Halldór Guömundsson, arkitekt, Ragnar A. Birgisson, arkitekt, og Bjarni Snœbjörnsson, arkitekt. Samstarf: Ásmundur H. Sturluson, arkitektanemi. Tillagan er að ýmsu leyti mjög góð, m.a. nýting útivistar- svæða og fyrirkomulag bflastæða og húsa á eystri hluta svæðisins, en hún tekur ekki nægilegt tillit til landhalla á vestari hlutanum. í tillögunni er ákveðinn ferskleiki og hún ber vott um viðleitni höfundar til nýsköpunar í skipulagi. Húsagerð er flókin og planlausnir íbúða óraun- hæfar. Tillagan er ein af þrettán, sem dómnefnd taldi koma sér- staklega til álita í 2. þrep samkeppninnar. MARKMIÐ Að fella íbúðarbyggð inn í landslag og umhverfi, þannig að samspil byggðar og náttúru sé sem eðlilegast. Að halda því landslagi sem fyrir er eins og kostur er, mynda samtengd opin svæði sem nýtast til útivistar og leikja. Að skapa fjölbreytta og líflega íbúðabyggð en þó með vissa hagkvæmni í huga. Að tengja svæðið markvisst við nærliggjandi þjónustu- og útivistarsvæði, gerð er tillaga um beina sjóntengingu við skúlptúrgarð. Hverfin sem verða til sitt hvorum megin klapparrimans mynda samstíga heild óreglulegra klasa sem undirstrika og gæla við náttúru svæðisins. Margbrey tileiki náttúrunnar er kveikjan að hinu líflega yfirbragði byggðarinnar bæði hvað varðar skipulag svæðisins og útfærslu hugmynda um hönnun bygginga og gatna. Mikil fjölbreytni er í ásýnd hverfisins sem skapast af vissri óreglu í innbyrðis staðsetningu húsa og endurspeglar hún náttúru svæðisins. Þetta gefur íbúðum mikil gæði varðandi umhverfi og útsýni. Klapparriminn tengist opnum svæðum sem myndast á milli íbúðarklasa, þannig flæðir náttúran inn í hverfin sem að sama skapi tengjast hinu friðlýsta svæði á afar mildan hátt. Náttúra og byggð vefjast saman og verður mikið útivistarsvæði með góðum innbyrðis tengslum, útsýni yfir borgina og sundin og sjónrænum tengslum við skúlptúrgarð vestan nágrannabyggðar. Hin opnu svæði eru hönnuð sem opnir garðar með aðstöðu til leikja fyrir böm og útiveru fyrir fullorðna, sameignlega gri 1 laðstöðu, möguleika á skokki, skíðagöngu og sólböðum. Reiknað er með vissri samnýtingu á milli svæða. Göngustígar tengja hverfin saman innbyrðis og tengja þau vel við ytri umhverfi, s.s.skóIa,verslanirogútivistarsvæði. Umferð ökutækja innan svæðisins fer fram um vistgötur sem vefjast um byggðina, enn með margbreytileika náttúrunnar að Ieiðarljósi. Götur þessar em allar lokaðar fyrir gegnumakstri og reynt er að gera umferðarsvæðið þannig úr garði að vægi gangandi vegfarenda og bama að leik verði sem mest, - akbraut og gönguleiðir liggja í sama plani, aðeins lágir pollar mynda mörkin á milli, - eðlilegt framhald göngustíga er markað í akbraut. Aðkoma að öllum húsum er úr norðri/norðaustri sem gerir það að verkum, að öll hús fá góða suður-/suðvesturgarða. 48
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.