AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1993, Page 69
Nye hpjhastighedslinjer (HH)
.11- eícsisterende (Sep 1991)s
mmmmmm projekterede (2010)
...... Linjer der omdannes til HH (2010)
---------- Korresponderende linjer mellem HH og forbindelser (2010)
__________ Andre linjer der har Fællesskabets interesse
Q Npgleforbindelser, der underspges nærmere
Mynd 4. Tillaga að hraðlestum í Evrópu, árið 2010.
ORKUMÁL
Flutningur orku um sæstreng til Evrópu hefur verið á
dagskrá hér á landi að undanförnu og því er fróðlegt að
fjalla nokkuð um það hvemig orkubúskap Evrópu er
háttað. Evrópubandalagið ermjög öðmm háð í orkumálum.
Það þarf að flytja tæplega helming allrar orkunotkunar
sinnar inn. Stóra-Bretland er best sett og flytur nær ekkert
inn en Portúgal og Italía verða að flytja nær alla orku sem
þau nota frá öðrum löndum.
Þegar Innri markaðurinn kemur til framkvæmda verður
heimilt að selja raforku og gas frjálst milli landa en á því
hafa verið hindranir til þessa. Því er nauðsynlegt að
skipuleggja flutningakerf i fyrir báðar þessar tegundir orku
fyrir bandalagið í heild enda ekki talið að frjáls markaður
geti byggt slík dreifikerfi sem tryggi neytendum eins
ódýra orku og mögulegt er.
Raforkumálin eru sérstaklega áhugaverð fyrir okkur
Islendinga. í framtíðaráætlun bandalagsins er gert ráð
fyrir því að erfitt kunni að reynast að koma nýjum
varmaorkuverum fyrir vegna umhverfissjónarmiða og að
skipuleggja verði flutningsleiðir, „ganga“, gegnum banda-
lagslöndin fyrir nýjar flutningslínur.
Bandalagið gerir þ ví ráð fyrir því að það muni í framtíðinni
kaupa verulegt magn orku frá nálægum löndum, bæði gas
og raforku. Eru þar nefnd til lönd allt í kringum bandalagið,
jafnvel frá Afríku. Ef eitthvað af þeirri orku er framleitt
meðbrunakolaeðaolíuhefurmengunarvandibandalagsins
verið fluttur út og verður höfuðverkur annarra en
Evrópubúa.
NIÐURLAG
í þessari grein hefur veriðfjallað um nokkuratriði varðandi
þróun Evrópu á næstu árum. Þrátt fyrir það að Evrópubúar
hafi á sér það orð að þeir vilji halda í gamla siði, byggi á
gamalli hefð og vilji jafnvel engu breyta er greinilegt að
þeir huga vandlega til framtíðar og ætla sér stóra hluti.
Ekki eru allir sammála því að Evrópa verði sá nafli
alheimsins sem ráðamenn Evrópubandalagsins hafa haldið
fram. Ef til vill verða ný vaxtar- og þar með áhrifasvæði
heimsins í Asíu og Suður-Ameríku. I öllu falli er ljóst að
þar er mannfjöldinn mestur og þar hefur orðið mjög mikill
hag vöxtur. Landakortið mun þv í brey tast víðar í heiminum
en í Evrópu.B
67