AVS. Arkitektúr verktækni skipulag


AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.2001, Page 55

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.2001, Page 55
farartæki, frekar ódýrir í innkaupi og stööutákn fyrir marga. Líklega gera borgarbúar sér ekki nægilega grein fyrir öllu því rými sem einkabíllinn krefst í borgalandinu og þeirri mengun og slysahættu sem af honum stafar. Mönnum var tíörætt um hin miklu samlegð- aráhrif sem skapast af þéttari byggö s.s. minni kostnaður viö samgöngur, stofnbrautakerfi ( 40 milljarðar á 20 árum) og veitukerfi og einnig minni náttúruspjöll. Þá voru aðilar sammála um aö þetta dreifða byggöaform geröi öörum samgöngukost- um nær ómögulegt að keppa viö einkabílinn. Helstu leiðir til úrbóta töldu fulltúar í hópnum eftirfarandi: ■ Ríkiö taki beinan þátt í uppbyggingu og rekstri almenningsvagnakerfis á höfuöborgarsvæöinu með sveitarfélögunum. ■ Ríkiö auki álögur á bíl númer 2 og 3. ■ Veita ber almenningsvögnum aukinn forgang í umferöinni með sérakreinum, séraöreinum og beygjum og umferðartengdum umferöaljósum. ■ Hækka bílprófsaldur í 18 ár. Myndi fjölga feröum meö almenningsvögnum um 7-800.000 feröir á ári. Sami aldur og í Danmörku, Svíþjóð og Finn- landi. ■ Hækka gjöld á bílastæðum, takmarka framboð og útvíkka gjaldtökusvæði á sem flest miösvæöi. ■ Bjóöa upp á ókeypis eöa ódýr bílastæði í út- hverfum eöa í jöörum miöhverfa í tengslum viö al- menningsvagnaleiöir (park and ride). ■ Leggja megináherslu á aö bæta almenn- ingssamgöngur við miöborgina og stærri þjónustu- kjarna, því hvorki er hægt í framtíðinni aö uppfylla rýmiskröfur umferöar á aökomuleiöum miöborgar- innar né bílastæöakröfur þar. ■ Vinna þarf aö viðhorfsbreytingu meöal almenn- ings og auka fræöslu um kosti þess að nota aöra samgöngumáta en einkabílinn, þ.e. strætó, hjól og ganglimina. Bæta þarf aðstæður og öryggi þeirra sem kjósa slíka feröamáta. ■ Opinberir aöilar, framhalds- og háskólar og stórfyrirtæki ættu aö hvetja starfsmenn til að nota almenningsvagna og kosta frekar slíkar samgöng- ur í stað þess að veita bílastyrki og frí bílastæöi. ■ Til aö draga úr álagstoppum í umferðinni er hægt aö beita meiri umferöarstýringu og hvetja til sveigjanlegs starfstíma á fjölmennum vinnustöö- um og samaksturs til vinnu. Vistvæn umhverfisstefna veröur ekki aö raun- veruleika án takmarkana fyrir umferö einkabíla og Unnið á Gagnavinnsludeild - LUKR í ARC/INFO með gögnum úr Landupplýsingakerfi Reykjavíkur '99. almenningur mun ekki nota aöra samgöngukosti nema finna hagvæmni þess aö nýta sér þá. Þaö þarf því að vinna aö því aö gera þessa kosti sam 53

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.