AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2001, Blaðsíða 11
leiðir, þá er þekkingarfyrirtækjum skapað hag-
stæðast umhverfi í nálægð við helstu
þekkingarsmiðjur nútímans, þ.e. við öfluga
háskóla og rannsóknarstofnanir. Þar er í senn að
finna uppsprettur nýsköpunar og verðmætasta
vinnuaflið, sérfræðinga og ungt menntafólk.
Háskóli íslands er langöflugasti og stærsti rann-
sóknarháskóli landsins. Hann er að auki staðsett-
ur í miðborgarumhverfi, en þetta tvennt skapar
kjöraðstæður fyrir þróun nútímalegs þekkingar-
þorps.
Hugmyndir um vísindagarða hafa breyst nokkuð
á síðustu 20- 30 árum. í fyrstu var markmið með
byggingu garðanna einkum það að auðvelda og
styrkja tækniyfirfærslu frá háskólum og rann-
sóknarstofnunum yfir til atvinnulífsins. Áhersla var
lögð á byggingu frumkvöðlasetra og sprotavera
þar sem bæði starfandi háskólamenn og frum-
kvöðlar utan háskólanna gátu fengið aðstöðu til
að raungera nýsköpunar- og viðskiptaáætlanir
sínar. Þá var síðan í auknum mæli farið að leigja
stærri þekkingar- og tæknifyrirtækjum húsnæði í
slíkum görðum.
í seinni tíð er í vaxandi mæli farið að líta á
vísindagarða sem leið til að skapa öflugt nýsköp-
unarumhverfi. Þá er gjarnan farið að vinna með
stærri áætlanir, meira byggingarými, fjölþættari
samsetningu, svæði fyrir sameiginlega þjónustu
og skipulag bygginga sem auðveldar samtenging-
ar og samskipti, bæði innan og milli fyrirtækja,
sem og milli háskóla og fyrirtækja. Uppbygging
öflugs og örvandi umhverfis verður megin mark-
miðið. Að sama skapi er vaxandi áhersla á að í
vísindagörðum sé borgarstemming sem höfðar til
ungs menntafólks. ■
Mikið urval
gæðaflísa
á góðu verði
Gegnheilar flísar
£
Marte Serie
GOLFEFNABUÐIN
traust undirstaða fjölskyldunnar
Reykjavík Sími 561 7800
Borgartún 33 Fax 561 7802
9