AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2001, Blaðsíða 61
minning
Búrfellsvirkjun.
GUÐMUNDUR KR. KRISTINSSON,
arkitekt 5.7.1925 - 25.10.2001
eiðarleiki, nákvæmni, fágun og
staðfesta eru eiginleikar sem koma
upp í hugann, þegar ég minnist
Guðmundar Kristins Kristinssonar,
arkitekts. Við unnum aldrei saman,
nema að félagsmálum, og hann var
formaður Arkitektafélags íslands þegar mér var
veitt innganga í það. Hann er mér og mörgum
öðrum minnisstæður fyrir margra hluta sakir.
í minningunni er Guðmundur Kr. líklega töluvert
hærri en hann var í rauninni. Hann bar sig glæsi-
lega, teinréttur, snyrtilegur til fara og með þver-
slaufu. Hann talaði af sannfæringu, hafði greini-
lega velt hlutunum vel fyrir sér og komizt að niður-
stöðu, þar sem ekki var alltaf auðveldlega hægt að
gefa mikið eftir. Hann umgekkst líka mikla prins-
ippmenn í stéttinni: Gunnlaug Halldórsson,
Hannes Kr. Davíðsson, Skúla Norðdahl og Ferd-
inand Alfreðsson, og hafa ýmis mál verið krufin í
baðstofunni í Nauthólsvík, sem þeir sóttu vikulega
um langt árabil.
Guðmundur Kr. var sonur blikksmiðs, sem rak
lengi blikksmiðju í Vesturbænum. Af föðurnum hef-
ur hann efalaust tamið sér öguð og nákvæm
vinnubrögð, sem síðar einkenndu arkitektastörf
hans. Eftir stúdentspróf frá Verzlunarskóla íslands
1946 hélt Guðmundur Kr. til Sviss og útskrifaðist
frá Eidgenössische Technische Hochschule Zúrich
sem fullnuma arkitekt 1953. Hann réðst í vinnu til
Gunnlaugs Halldórssonar, sem stofnað hafði sína
eigin teiknistofu í Reykjavík 1933, og fljótlega gekk
Guðmundur Kr. inn í reksturinn hjá Gunnlaugi,
Mávanes 7, Álftanesi.
Hús Rafmagnsveitu Reykjavíkur, Suðurlandsbraut 34.
59
HARALDUR HELGASON, ARKITEKT