AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2001, Blaðsíða 59

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2001, Blaðsíða 59
lagsins og skipulagi landnotkunar. Þaö er því kald- hæöni örlaganna aö þessum fagurfræöilegu atrið- um var síst framfylgt í uppbyggingu þéttbýlisstaö- anna. Staöfesting skipulags samkvæmt skipulags- lögunum frá 1921 fól þaö í sér aö hver einasta framkvæmd á viðkomandi staö átti aö vera í sam- ræmi viö uppdráttinn. Hreppsnefndum og bygging- arnefndum þeirra bar að hafa eftirlit meö fram- kvæmdum á hverjum staö og því hvíldi framfylgd skipulagsuppdráttanna aö stórum hluta á þeirra heröum. Skipulagslögin kváðu á um aö húsa- meistari eöa annar fagmaður skipaöur af Stjórn- arráðinu heföi eftirlit á 5 ára fresti meö uppbygg- ingu hvers kauptúns sem skipulagsuppdráttur var samþykktur fyrir.5 Misbrestur varð á framkvæmd þessa ákvæöis eins og var um mörg önnur í skip- ulagslögunum. í reynd hvíldi eftirlit meö uppbygg- ingu staðanna algjörlega á Skipulagsnefndinni en samkvæmt lagabreytingu frá 1926 bar hrepps- nefndum þeirra staða, þar sem skipulagsgerð var hafin, aö leita umsagnar Skipulagsnefndar um öll meiri háttar mannvirki.6 Bæjarstjórnir og hreppsnefndir sinntu því auö- vitað misvel aö leita umsagnar Skipulagsnefndar um einstakar framkvæmdir og skipulagsbreytingar og því hafði Skipulagsnefndin misgóö tök á því aö tryggja framfylgd skipulagstillagna. Eftir sem áöur bar Skipulagsnefndin verulega ábyrgö á því aö skipulagi var ekki betur fylgt eftir, því aö í mörgum tilvikum gaf nefndin eftir þegar hreppsnefnd leitaöi umsagnar um breytingu á skipulagstillögu og geröi jafnvel breytingar í óþökk hreppsnefndar. Áriö 1933 lýsti hreppsnefnd Akraness sig ósammála bráöabirgöa byggingarleyfi Skipulagsnefndar til Haraldar Böðvarssonar og gat þess jafnframt aö „ef svona undanþágur eru leyfðar telur nefndin sig vanmáttuga aö framfylgja skipulagi kauptúnsins.”7 Þá voru mörg tilvik þess aö hreppsnefndir höföu aö engu umsagnir Skipulagsnefndar og héldu sínu striki og veittu byggingarleyfi sem fóru í bága viö skipulagsuppdrátt.8 í einhverjum tilfellum hefur veriö ágreiningsefni hvernig túlka bæri skipulagsuppdráttinn og þá greinargerð sem honum fylgdi. Yfirleitt kom skýrt fram á uppdráttunum hvernig skipan húsa var hugsuö á byggingarreitum, afstaöa þeirra gagn- vart götu og hvar voru leyfð marglyft hús og hvar sundurlaus. Þrátt fyrir þaö viröist þaö einkum hafa veriö á þessum vettvangi sem byggingarleyfi hreppsnefnda fóru í bága viö skipulagshugmyndir Guðmundar og Guöjóns. Skipulagsnefnd var held- ur ekki saklaus í þessum efnum og var eftirgefan- legri í þessum málum heldur en þegar um var aö ræöa breytingu á legu gatna. Breytingar á staö- setningu og útliti einstakra húsa gátu haft veruleg áhrif á ásýnd bæjarins og brotið upp mótaöa hug- mynd aö götumynd. Slíkar breytingar á skipulagi leiddu gjarnan til fleiri undantekninga sem grófu enn frekar undan upphaflegu skipulagshugmynd- inni. í síðari skipulagstillögum Guömundar og Guöjóns, þegar líöa fór á 4. áratuginn, viröist sem tilskipanir þeirra um skipan húsa á byggingarreit- um og lóðum veröi ekki eins nákvæmar og strang- ar og áöur. Má vera aö þeir slaki á þessum ákvæöum í Ijósi reynslunnar. í skipulagslýsingu með staöfestu skipulagi fyrir Keflavík frá 1934 kemur eftirfarandi fram: „Húsaskipan á byggingar- reitum ræöur hreppsnefnd að sjálfsögöu. Hún hefur látiö þess getiö viö skipulagsnefnd, aö hún geri frekast ráö fyrir dreiföum, einlyftum íbúöar- húsum. Skipulagsnefnd vill benda á, aö þrátt fyrir alla kosti, eru slík hús dýr, köld og óásjáleg, ef stæröin er lítil. Hentugra er að byggja tvö og tvö saman eöa jafnvel stærri hópa, og getur hver fjöl- skylda haft sínar götudyr og allt sitt fyrir sig.”9 Rannsókn á framkvæmd skipulagsáætlana frá tíö Skipulagsnefndar 1921 til 1938 hefur leitt í Ijós Fræðimaðurinn Spiro Kostoff hefur gert tilraun til að flokka þéttbýli eftir því hvort vöxtur þess hafi verið skipulagður („planned/created") eða lífrænn („org- anic /spontaneous"). Erfitt er að fella íslenskt þétt- býli að þessu fiokkunarkerfi. í fljótu bragði, þegar aðeins er litið á uppdrátt af gatnaskipulagi og lóða- skipan, má greina mjög ákveðna reglufestu og hægt að fullyrða að megnið af íslensku þéttbýli 20.aldar- innar falli í fyrri flokkinn. Hinsvegar þegar litið er á hús í eldri götum frá miðri öldinni, einkum við versl- unargötur, virðist víða sem að hver bygging hafi fengið að spretta uppúr jarðvegi síns tíma, með sínum stíl og íburði, án nokkurs skipulags eða eftirlits yfirvalda. 57
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.