AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2001, Blaðsíða 14
Nemendaíbúðir eru annars vegar við Bólstaðar-
hlíð í framhaldi af íbúðarhúsum sem eru við þá
götu og hins vegar við Háteigsveg austan Háteigs-
kirkju. Þar er einnig dagheimili á 1. hæð annars
heimavistarhússins.
Umferð fótgangandi
Lögð er áhersla á greiðar og eðlilegar göngu-
leiðir um allt svæðið.
Megingönguleið liggur um miðbik svæðisins frá
norðri til suðurs, frá torgi framan við aðalinngang
SÍ á torg við mötuneyti og félagsaðstöðu, yfir Há-
teigsveg á torg við nýjan aðalinngang KHÍ og
áfram til suðurs undir tengigang á torg sem liggur
einni hæð neðar en aðalinngangstorg og þaðan
áfram allt að suðurmörkum svæðisins.
Gæta skal þess við útfærslu á gönguleiðum að
barnavagnar og hjólastólar komist um þær.
Bílaumferð
Góð strætisvagnaþjónusta er á svæðinu með
biðstöðvum við Háteigsveg, Stakkahlíð og Ból-
staðarhlíð.
Háteigsvegur liggur á milli lóða KHÍ og SÍ. Segja
má að hann bæði aðskilji lóðirnar og sameini þær.
Hann aðskilur þær á þann veg, að akbrautin liggur
þvert á gönguleiðir milli lóðanna en sameinar þær
á þann hátt, að frá honum liggja leiðir á bílastæði
við aðalinnganga beggja skólanna og að mötu-
neyti og félagsaðstöðu nemenda.
Til þess að draga úr því óhagræði, að göngu-
leiðir liggja yfir akbrautina, er gert ráð fyrir að á
milli Bólstaðarhlíðar annars vegar og Nóatúns/
Lönguhlíðar hins vegar, verði Háteigsvegur gerður
að vistgötu með mjög hægri bílaumferð.
Þótt ekki kæmu til tengslin milli KHÍ og SÍ er
þetta æskileg ráðstöfun með tilliti til Æfingaskól-
ans, íbúðabyggðarinnar og kirknanna sem við göt-
una standa.
Heildarbílastæðafjöldi á báðum lóðunum er
samkvæmt skipulaginu 693 stæði eða 1 stæði á
hverja 53 m2 alls húsnæðis annars en nemenda-
íbúða, þar sem reiknað er með 0,8 stæðum fyrir
hverja íbúð. ■
avs
arkitektúr verktœkni og skipulag