AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2001, Blaðsíða 56

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2001, Blaðsíða 56
HARALDUR SIGURÐSSON, SKIPULAGSFRÆÐINGUR Skipulagstillögur Guðmundar Hannessonar <pg Guðjóns Samúelssonar frá árunum 1924 til 1938 og áhrif þeirra á mótun íslenskra þéttbýlisstaða á 20. öldinni Enn þá stefnir allt í þá átt, aö bæir vorir verði bæði framúrskarandi Ijótir og óheilnæmir, verði landi og lýð til skammar. Ef ekki er bráðlega aðgert er þetta óumflýjanlegt. Ef vér höfum augun opin og förum hyggilega að ráði voru - þá er oss enn innan handar, að koma smám saman svo góðu skipulagi á bæi vora, að þeir standi mörgum bæjum annarra landa framar að fegurð, hentisemi og heilnæmi." Guðmundur Hannesson í „Nýtískuborgir”, Skírnir 1917. Bæir taka á sig mynd á mörgum áratugum og jafnvel öldum. Á því umbrotaskeiði sem ríkti í íslensku samfélagi á fyrstu áratugum 20. aldarinn- ar risu upp margir bæir við sjávarsíðuna sem ef til vill voru bæði „framúrskarandi Ijótir og óheilnæmir” eins og Guðmundur Hannesson ýjar að í grein sinni frá 1917. íslenskir þéttbýlisstaðir höfðu þó engan veginn tekið á sig endanlega mynd eins og Guðmundur bendir réttilega á. Steinsteypuöld var vart gengin í garð og þau hús, sem höfðu risið til- viljanakennt á kaupstaðalóðunum eða í grennd við þær, voru oft það rislítil að þau höfðu tæpast burði til að leggja stein í götu nútímalegri uppbyggingu bæjanna. Trú Guðmundar var því sú að mögulegt væri að bæta um betur í uppbyggingu bæja á íslandi, jafnvel þannig að þeir stæðu „mörgum bæjum annarra landa framar að fegurð, hentisemi og heilnæmi”. Setning skipulagslaga árið 1921 var liður í því að vinna á þeirri ringulreið sem virtist vera við- varandi í hinu síðborna íslenska þéttbýli. Á grund- velli laganna var stofnuð Skipulagsnefnd sem átti að sjá um framfylgd laganna. Skipulagsnefndin var skipuð þeim Guðmundi Hannessyni prófessor í læknisfræði, Guðjóni Samúelssyni arkitekt og húsameistara ríkisins og Geir Zoéga verkfræðingi og vegamálastjóra. Þær skipulagstillögur sem settar voru fram af nefndinni á árunum 1924-1938, einkum unnar af Guðmundi og Guðjóni, voru met- naðarfullar og á margan hátt vel ígrundaðar. Skipulagstillögunum var hinsvegar ekki betur fylgt eftir en svo að ásýnd margra íslenskra bæja ber enn skýran vott um það umbrotaskeið sem hér ríkti á fyrri hluta 20. aldarinnar. Þær skyldur sem skipulagslögin 1921 lögðu á herðar bæjarstjórnum, hreppsnefndum og fram- kvæmdaaðilum í bæjum landsins, að útbúa skipu- lag fyrir bæinn sem lýsti framtíðar gatnakerfi og Ef hægt er að segja að íslendingar hafi brotlent í nú- tímanum á fyrri hluta 20. aldarinnar kemur sú brot- lending hvað skýrast fram í okkar byggða umhverfi, í sundurleitum húsaröðum, háreistum og lágreistum byggingum á víxl frá mismunandi tímaskeiðum í ótal stílbrigðum ættuðum héðan og þaðan, sem í senn undirstrika smæð samfélagsins, óstöðugleika og ómarkvissa stjórn byggingaryfirvalda, og bjartsýni og athafnagleði einstaklinga. ráðstöfun lands nokkra áratugi fram í tímann, hljót- a að hafa þótt framandi á 3. áratug aldarinnar í Ijósi þess að slík hugsun er enn framandi fyrir marga í byrjun 21. aldarinnar. Það hafa verið nokkur viðbrigði fyrir yfirvöld bæjanna og athafna- menn staðanna að þurfa skyndilega að fara að byggja eftir settum reglum embættismanna í Reykjavík og horfa langt fram í tímann. Skipulags- nefnd mætti oft mótbyr en almennt virðist hún hafa náð ótrúlega góðu samstarfi við heimamenn, jafn- vel þar sem gert var ráð fyrir því að heilu bæjar- hlutunum yrði rutt úr vegi fyrir nýju skipulagi. Hafa má uppi efasemdir um hversu alvarlega menn tóku sumum tillögum Skipulagsnefndarinnar. Það hefur gilt það sama og nú, að staðfesting skipu- lagsáætlunar sem nær nokkra áratugi fram í tím- ann er engin trygging fyrir framkvæmd skipulags- ins. J 54
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.