AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2001, Blaðsíða 13
Skipulagið var unnið í nánu samstarfi við þessa
nefnd.
Forsögn
Forsögn var unnin þannig, að fyrst var gerð
forsögn fyrir einstaka skóla, sem reiknað er með
að verði á svæðinu, en síðan ein heildarhúsrýmis-
forsögn og þá með sérstöku tilliti til samnýtingar á
húsnæði.
Reiknað er með að Fósturskóli íslands, FÍ,
Þroskaþjálfaskóli íslands, ÞÍ og íþróttakennara-
skóli íslands geti sameinast Kennaraháskóla
íslands, KHÍ í eina háskólastofnun, hér nefnd Upp-
eldisháskóli íslands, UHÍ. Þó er reiknað með að
meginhluti kennslu íþróttakennaranema verði
áfram á Laugarvatni en stoðþjónusta verði sam-
eiginleg.
Húsrýmisforsögn er miðuð við ítrustu kröfur um
nemendafjölda og húsnæði.
Til grundvallar húsrýmisforsögn fyrir hina ein-
stöku skóla voru lagðar áætlanir unnar af stjórn-
endum og starfsmönnum skólanna.
f grófum dráttum skiptist hús-
naeðið þannrig:
Húsnæði UHÍ, húsnæði Sjómannaskóla íslands,
þ.e. Stýrimannaskólans í Reykjavík og Vélskóla
íslands og húsnæði sem þjónar þessum skólum
sameiginlega, sem er íþróttahús og sundlaug,
mötuneyti og félagsaðstaða nemenda, heimavistir
og dagheimili.
Gert er ráð fyrir að Æfingaskóli KHÍ verði venju-
legur hverfisskóli á vegum Reykjavíkurborgar.
Crundvallarsjónarmrið
Með skipulaginu er stefnt að því að skapa heil-
stætt skólahverfi sem myndi umgjörð um lifandi
skólastarf og stuðli að samstarfi skólanna.
Lögð er áhersla á að milli húsanna myndist
þægileg rými í tengslum við eðlilegar gönguleiðir.
Nýbyggingar eru 1-3 hæðir. Þessi hæðafjöldi er
hagkvæmur með tilliti til þeirrar starfsemi sem í
byggingunum verður, en stuðlar einnig að æski-
legri rýmismyndun og skjóli.
Ennfremur er þessi hæð nýbygginganna valin til
þess að núverandi aðalbyggingar SÍ og KHÍ njóti
sín eftir sem áður.
Skripulagssvæðrið
Einkennandi fyrir svæðið, fyrir utan byggingar
KHÍ og SÍ, eru kaldavatnstankarnir í grænum hól-
um, sem liggja á mörkum lóðanna, kirkja Óháða
safnaðarins, Háteigskirkja og há íbúðarhús við
suðausturhorn lóðar KHÍ. Báðar lóðirnar eru gott
byggingarland.
Fremur vindasamt er á þessum slóðum eins og
annars staðar í Reykjavík. Helstu aðliggjandi göt-
ur eru Skipholt, Bólstaðarhlíð, Stakkahlíð og Há-
teigsvegur, sem liggur á milli lóðanna.
Til þess að ná fram því svipmóti á svæðinu sem
skipulagið stefnir að er mikilsvert að vanda mjög
lóðarfrágang og frágang á vistgötu.
Stefna ætti að því að koma upp ríkulegum trjá-
gróðri en varðveita þó þau sérkenni sem á svæð-
inu eru.
Suð-vestan við vélahús og rafmagnshús er holt
með náttúrulegum gróðri. Þá eru í norðaustur
horni lóðar SÍ leifar af stakkstæði. Bæði þessi
svæði ber að varðveita.
Fyrrirkomulag byggringa
Skipan nýbygginga á lóðunum tekur mið af
tveimur meginsjónarmiðum:
í fyrsta lagi að þær tengist á rökréttan hátt þeim
byggingum sem fyrir eru með tilliti til innra skipu-
lags og í öðru lagi að þær myndi þægileg útirými
og eðlileg göngutengsl milli einstakra bygginga og
um svæðið í heild.
Á 1. hæð í austur-vesturálmu núverandi aðal-
byggingar KHÍ er veglegur gangur. Við þennan
gang tengjast nýbyggingar KHÍ.
Núverandi bókasafn verður hluti af fyrsta áfanga
nýbygginga.
Húsnæðinu, sem bókasafnið er nú í, verður
breytt í kennslustofur.
List- og verkgreinahús verður byggt í aðalatrið-
um samkvæmt teikningum sem þegar hafa verið
gerðar, en þetta hús er með sama sniði og hús
sem þegar hefur verið byggt.
Nýbyggingar KHÍ má byggja í þremur til fjórum
áföngum.
Hús SÍ er nægilega stórt til að taka við hugsan-
legri stækkun vegna bóknáms, en gert er ráð fyrir
stækkunarmöguleikum á verknámshúsum skól-
ans.
Staðsetning á húsi mötuneytis og félagsaðstöðu
nemenda mitt á milli KHÍ og SÍ er mikilvæg í þeirri
viðleitni að skapa heilstætt skólahverfi á svæðinu.
Form hússins gegnir einnig hlutverki í þessu sam-
bandi. Með því er myndað torg suðvestan við
húsið, sem er í sjónrænum tengslum við aðalinn-
ganga KHÍ og SÍ og er á miðri gönguleið milli skól-
anna.