AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2001, Blaðsíða 88
Form - efni - fyrirherit
Miklu skiptir aö yfirbragö svo stórrar byggingar
sem hér um ræöir búi í senn yfir þeirri síkviku
spennu, sem hæfir framsæknu fyrirtæki, svo og
þeirri sjálfsögöu tillitssemi er hæfir stööu hennar í
borgarmyndinni. Tillagan er því grundvölluð á ögr-
andi meöferð forma og markvissri notkun fárra en
útvalinna byggingarefna.
Þegar spenna leysist úr læöingi og verkar á mik-
inn massa, verður útkoman oftar en ekki óvænt en
heillandi. Hugmyndin aö húsinu snýst um spennu;
þaö er eðli þeirrar starfsemi, sem þaö á hýsa, og
því freistandi aö reyna aö endurspegla hana á
raunsæjan hátt. Hábyggingu skrifstofuhússins er
skipt í tvo hluta, sem mynda starfræna heild.
Annar hlutinn, hinn eystri, er þungur og formlegur;
viröulegur og traustur. Hinn hlutinn er andstæöa
hans: spennandi og kvikur; gefur sterklega til
kynna hreyfingu, hugarflug, forvitni, gleöi. Sveigj-
an í byggingunni og hallandi, málmklæddur útflöt-
ur þess skapa mikla dynamík er spilar á móti form-
föstum, steinklæddum kassanum. Málmklæöning-
in er aldrei eins; hún breytist eftir tíma og veöri, er
öðruvísi blaut en þurr, á meðan nágranni hennar
hímir þögull eins og bjarg, sem ekkert fær bifað.
Báöir húshlutarnir eru fyrirferðarmiklir á sinn
hátt; en rýminu á milli þeirra er ætlað aö milda
andstæöurnar; það hefst á spegiltjörn á tveimur
plönum, sem fylgir gestinum inní húsiö en endar í
e-k stóru glertjaldi er afmarkar útlínur rýmisins.
Hluti tjarnarinnar steypist sem fossveggur niöur í
neðri hluta hennar og myndar þar umhverfi mötu-
neytis og starfsmannaaöstööu.
Notendavridmót - gestrir og herima-
menn - móttaka og rimynd
Gestir hússins koma strax í kjarna þess, hvolf-
rýmið, sem tengir húshlutana saman, bæöi lárétt
og lóörétt. Hvolfrýmið er jafnframt vettvangur fyrir
upplýsingaveitu fyrirtækisins; þjónustufulltrúa,
kaffihús, bankaþjónustu, barnahorn, kynningar-
starfsemi og uppákomur; þaö tengist beint mötu-
neyti og starfsmannarými á efri klöppinni. Hvolf-
rýmiö gegnir lykilhlutverki í byggingunni, því það
mótar ööru fremur viömót notandans til hússins.
Fjölbreytt starfsemi og þjónusta OR endurspeglast
í byggingu, þar sem afgerandi form og efnisval
eiga möguleika á aö mynda sterka samræmda
heild. Fjölbreyttir möguleikar skapast til aö láta
húsiö endurspegla starfsemina meö mismunandi
hætti, t..d. meö lýsingu innan frá, sem getur tekiö
breytingum eftir árstíma.
Tengsl og flaeðri
Samgöngukerfi hússins byggist á hringsælis
tengingu um hvolfrýmið í miöju hússins; göngum
er haldið í lágmarki í skrifstofurýmunum, þar sem
hvert rými vex í raun af ööru. Aðalsamgöngukerf-
in eru því lóðréttar lyftu- og stigaleiöir og láréttar
þvertengingar yfir í hvolfrýmið annarsvegar, en
milli skrifstofuhúss og verkstæðis hinsvegar. í hús-
inu veröa 3 lyftur; tvær í vesturhúsi og ein í aust-
urhúsi. Fjórða lyftan er svo í verkstæðisbygging-
unni.
Staekkun
Áöur hefur bent á mikilvægi þess, aö sterkt og
afdráttarlaust form byggingarinnar takmarki ekki á
nokkurn hátt notagildi hennar og þróunarmögu-
leika. í því tilviki er nauðsynlegt aö skilgreina strax
í upphafi hvernig bregöast megi viö aukinni hús-
næöisþörf eöa breyttri nýtingu í framtíðinni. Bent
hefur verið á þann kost, að stækka megi húsiö til
austurs, þar sem bílageymsla myndi undirstööur
burðarkerfis. Slík stækkun myndi jafnvel enn frek-
ar undirstrika meginhugmynd hússins.
86