AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2001, Blaðsíða 45

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2001, Blaðsíða 45
jökulánna. Svo mikið er víst, að verði fórnarkostn- aður eða verðmæti þess lands, sem spillist, reikn- aður sem hluti af stofnkostnaði virkjana á þessu svæði, er arðsemi þeirra rokin út í verður og vind. Stóriðjustefnan Á sjöunda áratug síðustu aldar var mörkuð svo- kölluð stóriðjustefna stjórnvalda, sem byggðist í aðalatriðum á tveimur grundvallaratriðum. í fyrsta lagi að skapa aðstæður til að nýta vatnsorkuna í landinu til hagsbóta fyrir þjóðina. í öðru lagi að fá erlend stórfyrirtæki til að reisa orkufrek stóriðju- fyrirtæki á íslandi, sem myndu nýta afgangs- og umframorku vatnsaflsvirkjananna. Mönnum var Ijóst, að til að virkja stórt og geta þannig nýtt hagkvæmni stærðarinnar, yrði að hafa stóran raforkukaupanda, þar sem almenningsmarkaður- inn á íslandi væri lítill og yxi hægt. Fyrir lá, að það verð, sem fengist fyrir umframorku til stóriðju, yrði miklum mun lægra en til almenningsveitna. Verð stóriðjurafmagns ræðst af heimsmarkaðsverði á orku, sem er víða mjög lágt. Því var lögfest, að ekki mætti niðurgreiða orkuverð til stóriðju með hækkun verðs til almennings í landinu. í öðru lagi var einnig Ijóst, að rekstur stóriðjuvera svo sem álbræðslu væri mjög áhættusamur, enda miklar sveiflur á heimsmarkaðsverði á áli. Ein meginfor- senda stóriðjustefnunnar var því sú, að íslending- ar ættu ekki undir neinum kringumstæðum að fjár- festa í stóriðjuverunum sjálfir, heldur láta erlendu fyrirtækin ein um það. Fyrsta framkvæmd þessarar stefnu var bygging Búrfellsvirkjunar og álversins í Straumsvík. Má fullyrða, að hún hafi tekizt mjög vel og reynzt þjóð- inni happadrjúg.Við næstu framkvæmd, þ.e. bygg- ing járnblendiverksmiðju á Grundartanga, var vikið út frá þeirri forsendu, að íslendingar ættu ekki að hætta fé sínu í stóriðjuverinu. íslenzka ríkið gerð- ist stór hluthafi í járnblendiverksmiðjunni. Sú ákvörðun var mjög afdrifarík, enda tapaði ríkið svo til öllu hlutafé sínu og reið ekki feitum hesti frá þeirri framkvæmd. Sama má í raun segja um að- komu Landsvirkjunar, þ.e. raforkusalans, en raf- orkuverð til Járnblendiverksmiðjunnar hélzt lengi vel mjög lágt, og vafasamt hvort framkvæmdin hafi nokkurn tímann borgað sig fyrir þjóðarbúið. Nú hefur þessum grundvallarforsendum stóriðju- stefnunnar, þ.e. i) að reisa vatnsaflsvirkjanir ein- göngu með hagsmuni almenningsmarkaðarins í huga og ii) að hætta ekki fé landsmanna í stór- iðjuverinu sjálfu, verið kastað fyrir róða. Með Kárahnjúkavirkjun er verið að reisa virkjun, sem eingöngu á að þjóna einum raforkukaupanda, þ.e. fyrirhuguðu álveri á Reyðarfirði. Fleyrzt hefur, að virkjunin verði ekki einu sinni tengd við landskerf- ið, heldur einungis beintengd við álverið. Það er því erfitt að sjá hvernig hinn almenni markaður hagnast á þessari framkvæmd. Þvert á móti vakna grunsemdir um, að raforkuverð til almenn- ings, og þar með til íslenzkra iðnfyrirtækja, muni hækka til að standa undir gífurlegum stofnkostn- aði virkjunarinnar þrátt fyrir lög um hið gagn- stæða. Hinn hluti þessara stóru byggðaþróunar- drauma gengur svo út á það, að íslendingar ætla sjálfir að fjármagna stærsta hlutann af stofnkostn- aði hins risastóra álvers á Reyðarfirði og nota til þess fjármagn frá lífeyrissjóðunum í landinu. Norðmenn eiga hins vegar að fá full yfirráð yfir álverinu og rekstri þess, þótt þeir útvegi aðeins brot af stofnkostnaði þess. Væntanlega fá þeir stóran hlut eignaraðildar sinnar í formi „tækni- þekkingar og markaðsaðildar” á sama hátt og gerðist á Grundartanga, en samningarnir við Norðmenn um járnblendiverksmiðjuna voru okkur íslendingum fremur óhagstæðir. Sporin hræða. Gagnast íslendringar alþjódasamfé- lagrinu með því að rerisa álver á íslandri? Stjórnvöld hafa mjög haldið því á lofti, að íslend- ingar geti dregið úr losun gróðurhúsalofttegunda á hnattræna vísu með því að stuðla að byggingu ál- vera á íslandi, þar sem þau noti „hreina og vist- væna” orku, þ.e. vatnsafl. Jakob Björnsson, fyrrv. orkumálastjóri, er einn þeirra, sem hefur tekið hraustlega undir þetta sjónarmið í mörgum blaða- greinum, þar sem hann tíundar kosti þess að nota vatnsorkuna og velja áliðnaði stað á íslandi. Álver yrði annars byggt, þar sem notuð yrði raforka framleidd með kolum eða olíu, sem myndi valda mikilli losun koltvíoxíðs. Telur hann því, að sú stefna ríkisstjórnarinnar að undirrita ekki Kyoto- sáttmálann hafi verið rétt. Þessi áróður hefur heppnast mjög vel, og er svo komið, að flestir ís- lendingar halda, að aðeins á íslandi verði reist ál- ver, sem noti vatnsaflsrafmagn. Einn þingmanna stjórnarflokkanna sagði í Kastljósþætti í sjónvarp- inu í fyrra, að okkur bæri skylda til að reisa álver á íslandi til að draga úr hnattrænni losun gróður- húsalofttegunda! 43
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.